Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins?

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 26.6.2026 | 7:00 Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Einar S. Hálfdánarson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Gríðarleg áhætta stafar af inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þeir sem styðja innlimun Íslands í Evrópusambandið telja stöðu íslensks sjávarútvegs eftir inngöngu í sambandið munu verða nokkuð trygga (eða segja það a.m.k.). Svonefnd stöðugleikaregla (úthlutun aflaheimilda á grundvelli veiðireynslu) tryggi að aflaheimildunum verði úthlutað til íslenskra fyrirtækja. Í annan stað séu fiskimiðin fjarri öðrum löndum. En það sem gleymist er hin stórfellda áhætta; stöðugleikareglunni má vissulega breyta o.s.frv. Og við vitum að allt er í heiminum hverfult. Svo er hitt að um 30% af fiskveiðum Íslands eru úr stofnum sem við nýtum ásamt m.a. ESB-flotum (svonefndir deilistofnar). Þar er áhættan óendanleg. Í mjög svo umdeildum þætti RÚV um Evrópusambandið ræddu nokkrir Evrópusambandssinnar og einn fremur óháður um fyrirhugaða aðild. Fram kom að ESB hefði boðið Íslendingum 0,4% hlutdeild í makríl í fyrri aðildarviðræðum sem stóðu í fjögur ár meðan við töldum 28% auðvitað rétt. Mig brestur reiknikunnáttu, en getur verið að þetta sé sjö milljón prósenta munur? Reynsla Breta af undanþágum frá sjávarútvegsstefnunni Ekki verður annað sagt en reynsla Breta af „undanþágum“ frá sjávarútvegsstefnunni sé hörmuleg. Önnur ESB-ríki fundu auðvitað leiðir fram hjá undanþágunum. Í þeim er engin vörn. Varðandi sjómennina hefur verið haldið fram að þeir myndu áfram falla undir íslenska kjarasamninga ef skip er skráð hér þótt útgerðin réði sjómenn frá Spáni eða Portúgal. Einnig er haldið fram að aðild að ESB breyti ekki þeirri meginreglu að störf sem unnin eru á íslenskum skipum lúti íslenskum vinnurétti og kjarasamningum. Að spænskir eða portúgalskir eigendur gætu ekki einfaldlega ráðið áhafnir á kjörum heimalands síns á íslensk skip. Þessi fullyrðing byggist á því að Evrópudómstóllinn myndi dæma skylduaðild að stéttarfélögum (e. closed shop) kjarasamninga löglega ef á þá reyndi. Það eru hins vegar allar líkur á að það myndi dómstóllinn alls ekki gera, sbr. dómafordæmi, t.d. Sørensen og Rasmussen gegn Danmörku. Íslensk fiskiskip myndu þá verða mönnuð ódýrum áhöfnum þaðan í frá. Íslenskir sjómenn eiga allt undir því að útgerðin verði áfram íslensk Íslenskir sjómenn þurfa að standa saman allir sem einn til varnar hagsmunum sínum, sem eru raunar líka hagsmunir allra Íslendinga. Sama þurfa allir þeir sem hafa hagsmuni af viðskiptum við útgerðirnar að gera. Já, og landsbyggðin öll. Og öll þurfum við að standa vörð um að eignarhald verði áfram að mestu í höndum Íslendinga eins og nú er skilyrði íslenskra laga. Engin rök standa til að spila rússneska rúllettu um auðlindir Íslands í skiptum fyrir aðgang að evrunni sem aðrar þjóðir vilja ekki þótt þær eigi þess kost. Já, og verkalýðshreyfingin í heild verður að verja íslensk störf í sjávarútvegi. Annað væri hrein svik við íslenska launþega. Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hitabylgjan skellur með fullum þunga á Danmörku „Endaði á að verða helvítis skellur“ Aðsend grein: Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Arnar fyrstur í mark eins og undanfarin ár „Því meira trukkalessuvæb, því betra“ Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Einfalda og nútímavæða byggingarreglugerð Maðurinn sem bauð Noregi birginn Umfangsmiklar breytingar: 18 störf lögð niður Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Borgin viðurkennir veruleg mistök Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Lambeyramáli vísað heim í hérað Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Hótel Skáld opnar um helgina á Akureyri Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Hitabylgjan skellur með fullum þunga á Danmörku „Endaði á að verða helvítis skellur“ Aðsend grein: Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Arnar fyrstur í mark eins og undanfarin ár „Því meira trukkalessuvæb, því betra“ Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Hver yrðu örlög sjávarútvegs á Íslandi innan Evrópusambandsins? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Stærsti skjálftinn í meira en öld Utanvegaakstur vítt og breitt um Suðurland Mest lesið Í gær Í vikunni Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Borgin viðurkennir veruleg mistök Munu ráða fólk til að hafa samskipti við fjölmiðla Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Lambeyramáli vísað heim í hérað Kaffistofa Samhjálpar í uppnámi Segir þyrlu á Akureyri löngu tímabæra Hótel Skáld opnar um helgina á Akureyri Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article