- What: Former South Korean president Yoon Suk Yeol was sentenced to life in prison for attempting to seize power and suppress political opponents by deploying the military to surround the parliament.
- Impact: The attempt to impose martial law was unsuccessful, but caused significant social disruption.
Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann lýsti yfir herlögum í desember 2024 þegar hann reyndi að hrifsa til sín öll völd í landinu. Hann fyrirskipaði hernum að umkringja þinghúsið til að koma í veg fyrir að þingið gæti starfað. Yoon Suk Yeol sagði að þetta væri nauðsynlegt til að losna við öfl sem væru andvíg ríkinu. Tilraun hans rann út í sandinn samdægurs. Ji Gwi-yeon, formaður dómsins sem sakfelldi forsetann fyrrverandi, sagði að Yoon Suk Yeol hefði reynt að þagga niður í pólitískum andstæðingum sínum með hervaldi. Ætlunin hefði verið að lama störf þingsins í langan tíma. „Beiting herlaga hafði í för með sér gífurlegan samfélagslegan kostnað og það er erfitt að finna nokkra vísbendingu um að ákærði finni til eftirsjár.“