Lögmenn Yoon Suk Yeol ætla að áfrýja lífstíðarfangelsisdómi yfir honum.EPA / JEON HEON-KYUN Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu hefur ákveðið að áfrýja lífstíðardómi yfir sér fyrir uppreisnartilraun með því að lýsa yfir herlögum í desember 2024 og senda hermenn til að koma í veg fyrir að þingið gæti starfað. Í dómsorði sagði að Yoon Suk Yeol hefði ætlað sér að lama þingið og hrifsa til sín öll völd. Uppreisnartilraunin rann samdægurs út í sandinn. Lögmenn Yoons sögðu í morgun að brýnt væri að koma á framfæri réttarfarsgöllum á niðurstöðunni, svo komast megi hjá slíkum mistökum til framtíðar.