Þrátt fyrir aukna ársverðbólgu í júní gæti verðbólga lækkað meira en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í nýrri hagsjá frá Landsbankanum. Bráðabirgðaspá hagfræðideildar Landsbankans gerir ráð fyrir að ársverðbólga verði 5,0% í júlí, 5,2% í ágúst og 5,0% í september. Til samanburðar gerði fyrri spá bankans ráð fyrir að verðbólga verði 5,3% í júlí, 5,5% í ágúst og 5,4% í september. Hagfræðideildin rekur breytta þróun til tveggja þátta. Í fyrsta lagi breyttum forsendum um þróun olíuverðs sem tekur tillit til nýlegrar þróunar og aukinnar bjartsýni um að skipaflutningar um Hormússund komist í eðlilegt horf. Í öðru lagi er gert ráð fyrir minni hækkun flugfargjalda í júlí vegna mikillar hækkunar nú í júní. Bankinn hafði áður gert ráð fyrir að verðbólga myndi standa í stað í júní og skýrðu hækkanir flugfargjalda mest af muninum á spá bankans og mælingu Hagstofunnar. Vísbendingar um kólnun skýrari Vísbendingar um kólnun í hagkerfinu og minni eftirspurn hafa orðið meira áberandi í verðbólgutölum að mati hagfræðideildarinnar. Framlag matvöru, húsnæðis og fatnaðar til ársverðbólgu hefur minnkað síðustu mánuði. Framlag flestra liða til ársverðbólgu hefur dregist nokkuð saman frá ársbyrjun en miklar hækkanir á eldsneyti og flugfargjöldum valda því að verðbólgan dregst ekki meira saman og virðist föst í kringum 5,2%.