Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá óbreyttri verðbólgu í júlí

Read Full Article →

Hag­fræði­deild Lands­bankans spáir því að verðbólga verði óbreytt í júlí og mælist 5,2%. Sam­kvæmt spánni hækkar vísi­tala neyslu­verðs um 0,34% milli mánaða. Hag­stofan birtir júlímælingu vísitölunnar fimmtu­daginn 23. júlí. Flug­far­gjöld til út­landa vega þyngst til hækkunar í mánuðinum, en sumarútsölur og lægra elds­neytis­verð hafa áhrif til lækkunar. Lands­bankinn telur þó ólík­legt, miðað við núverandi spá, að verðbólga fari undir for­senduákvæði kjara­samninga í næsta mánuði. Í Hag­s­já Lands­bankans kemur fram að flug­far­gjöld til út­landa hafi verið tæp­lega 20% dýrari það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Í júní hækkuðu þau meira en bankinn hafði gert ráð fyrir og voru um 28% dýrari en í júní í fyrra. Lands­bankinn spáir því að flug­far­gjöld hækki um 15,2% milli mánaða í júlí og verði um 23% dýrari en á sama tíma í fyrra. Á móti koma áhrif sumarút­salna. Bankinn gerir ráð fyrir að verð á fötum og skóm lækki um 5% milli mánaða í júlí. Útsölur hafi þó al­mennt orðið minni eftir far­aldurinn en áður var. Fyrir far­aldur hafi verð á fötum og skóm yfir­leitt lækkað um rúm­lega 10% í janúar- og júlíútsölum, en eftir far­aldur hafi lækkanirnar verið hóf­legri. Lands­bankinn gerir ráð fyrir að útsöluáhrifin gangi til baka í ágúst og septem­ber. Verð á hús­gögnum og heimilis­búnaði er einnig talið lækka í júlí, eða um 1,5%, vegna sumarút­salna. Elds­neytis­verð hefur jafn­framt lækkað frá fyrri mánuði. Sam­kvæmt verð­at­hugun Lands­bankans hefur verð á bensíni og dísilolíu lækkað um rétt tæp­lega 3% frá síðasta mánuði. Bankinn gerir ráð fyrir að sú lækkun komi áfram fram í elds­neytis­verði hér á landi næsta mánuð, þótt þróunin ráðist áfram að miklu leyti af sveiflum á heims­markaðsverði olíu. Lands­bankinn spáir því að matar­karfan hækki um 0,23% milli mánaða í júlí. Árs­hækkun matar­körfunnar mældist 3,9% í júní en var 6,8% í árs­byrjun. Gangi spáin eftir verður árs­hækkunin áfram rétt um 4%. Húsnæðisliðurinn skýrir enn stærstan hluta verðbólgunnar en fram­lag hans hefur minnkað síðustu mánuði. Reiknuð húsa­leiga skýrði 2,2 pró­sentu­stig af 5,2% verðbólgu í árs­byrjun en fram­lagið var komið niður í 1,9 pró­sentu­stig í júní. Lands­bankinn gerir ráð fyrir að fram­lag húsnæðisliðarins dragist áfram hægt saman á næstu mánuðum. Í júlí er spáð 0,5% hækkun reiknaðrar húsa­leigu og 0,2% hækkun annars kostnaðar vegna húsnæðis. Skammtíma­spá bankans hefur hækkað lítil­lega frá síðustu spá. Það skýrist einkum af minni lækkun elds­neytis­verðs í júlí en áður var gert ráð fyrir og hækkun komu­gjalda á heilsugæslu frá 1. ágúst. Komu­gjaldið hækkar úr 500 krónum í 1.000 krónur og metur Lands­bankinn áhrifin til um 0,1 pró­sentu­stigs hækkunar á ár­s­verðbólgu í ágúst. Lands­bankinn spáir því að verðbólga hækki í ágúst en fari síðan að lækka á ný. Sam­kvæmt spánni verður verðbólga 5,2% í júlí, 5,4% í ágúst, 5,3% í septem­ber og 5,0% í október.

Share this article