Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dembélé með þrennu og Frakkar mæta Svíþjóð

Read Full Article →

Frakkland vann góðan sigur á Noregi í lokaleik liðanna í I-riðli á HM, 4-1. Bæði lið voru þegar komin áfram en kepptu um efsta sæti riðilsins. Ståle Solbakken gerði tíu breytingar á norska liðinu milli leikja en Frakkar spiluðu á sterku liði. Dembélé var allt í öllu í dag og hann opnaði markareikninginn á 7. mínútu, 1-0 fyrir Frakka. Hann tvöfaldaði svo forystuna á 20. mínútu eftir fyrirgjöf Mbappe. Það er skammt stórra högga á milli því Norðmenn minnkuðu muninn á 21. mínútu. Thelo Aasgaard skoraði eftir stoðsendingu Andreas Schjelderup, 2-1 fyrir Frakka. Dembélé var þó ekki hættur því hann kom Frakklandi í 3-1 á 32. mínútu. Désiré Doué átti svo síðasta orðið á fjórðu mínútu uppbótartíma þegar hann skallar boltann í netið, 4-1. Niðurstaðan er 4-1 sigur Frakkanna á B-liði Noregs. Úrslitin þýða að Frakkar munu mæta Svíþjóð í 32-liða úrslitum og Noregur spilar við Fílabeinsströndina.

Share this article