Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Undirrituðu þríhliða rammasamkomulag um frið í Líbanon

Read Full Article →

Ísrael og Líbanon hafa undirritað þríhliða rammasamkomulag ásamt Bandaríkjunum sem ætlað er að tryggja frið í Líbanon. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti þetta í gærkvöld. Samkomulagið er afrakstur langra viðræðna í Washington sem Bandaríkin hafa haft milligöngu um. Rubio sagði enn mikla vinnu fram undan hjá báðum ríkjum en að þetta væri fyrsta skrefið í átt að friði milli ríkjanna. Líbanon dróst inn í stríðið í Mið-Austurlöndum í byrjun mars þegar Hezbollah hóf árásir þaðan á Ísrael. Líbönsk yfirvöld segja yfir 4.200 hafa verið drepna í árásum Ísraelshers í landinu. Rúmlega milljón Líbanar hafa yfirgefið heimili sín síðan árásirnar hófust. Ísrael og Hezbollah samþykktu vopnahlé í síðustu viku sem varði stutt Samkomulagið kveður á um að bæði Ísrael og Líbanon lýsi yfir vilja sínum til að enda átök í landinu og takast á við undirliggjandi ástæður átaka. Samkvæmt samkomulaginu skuldbindur líbanska ríkisstjórnin sig til að ná aftur fullum yfirráðum í landinu með afvopnun vopnaðra hópa, einkum Hezbollah-samtakanna. Stjórnvöld þurfi að tryggja að vopnaðir hópar ráði ekki yfir neinum herstyrk innan landsins. Á móti dregur Ísraelsher sig úr landinu í áföngum. Í síðustu viku undirrituðu Ísrael og Hezbollah undir vopnahléssamkomulag. Nokkrum klukkutímum eftir að tilkynnt var um vopnahléð hófust loftárásir Ísraela á Líbanon að nýju. Naim Qassem, leiðtogi Hezbollah-samtakanna, sagði í gær að Ísraelar ættu engra annarra kosta völ en að yfirgefa Líbanon að fullu. Það ætti Ísraelsher að gera skilyrðislaust. Skömmu eftir að rammasamkomulagið var kynnt í gærkvöld sagði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, að her landsins myndi ekki yfirgefa Líbanon fyrr en Hezbollah legði niður vopn sín.

Share this article