Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísrael gerir árásir á Líbanon í skugga samningaviðræðna

Read Full Article →

Að minnsta kosti einn lést og ellefu særðust í árásum Ísraelshers á skotmörk í suðurhluta Líbanons í dag. Á sama tíma eiga fulltrúar ríkjanna tveggja í samningaviðræðum í Róm um að binda enda á átökin. „Til að bregðast við augljósu broti hryðjuverkasamtakanna Hezbollah á vopnahléinu hefur Ísraelsher hafið nákvæmar árásir á suðurhluta Líbanons,“ segir í yfirlýsingu hersins. Sendu út rýmingarviðvörun fyrr í dag Fyrr í dag hvatti Ísraelsher íbúa í þorpi á svæðinu til að yfirgefa heimili sín tafarlaust vegna yfirvofandi árása á Hezbollah. Þetta er í fyrsta sinn í nokkrar vikur sem herinn gefur út viðvörun af þessu tagi. Samkvæmt ríkisfréttastofu Líbanons fóru ökutæki ísraelska hersins á útjaðar þorpsins Aita al-Jabal í suðurhluta Líbanons og skutu í átt að því og nærliggjandi landi. Þá sáust ísraelskir drónar og njósnaflugvélar á sveimi yfir svæðinu. Líbanskir fjölmiðlar segja árásinni hafa verið beint að þaki bænasvæðis kirkjugarðsins í bænum Tibnin. Sjöunda lota samningaviðræðna hófst í gær. Samningaviðræður milli stjórnvalda í Ísrael og Líbanon hófust í Róm, höfuðborg Ítalíu, í gær. Þetta er sjöunda lota viðræðna milli ríkjanna tveggja og þær standa yfir í þrjá daga. Yfirlýst markmið þeirra er að bæta öryggisfyrirkomulag við landamæri ríkjanna og að hrinda í framkvæmd rammasamkomulagi sem náðist í Washington í lok júní. Samkomulagið felur meðal annars í sér afvopnun Hezbollah og að Ísraelsher dragi sig frá suðurhluta Líbanons. Hezbollah hefur hafnað þeim skilyrðum alfarið og neitar að leggja niður vopn.

Share this article