Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Yfirgripsmikið þekkingarleysi á evrumálum

Read Full Article →

Margir eru á því að sá tals­maður þeirra sem hyggjast segja nei í þjóðaratkvæðisgreiðslunni um áframhaldandi aðlögun að Evrópusambandinu sem standi sig hvað best sé Helga Vala Helgadóttir, stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni. Hún mætti til leiks á föstudag ásamt Ernu Bjarnadóttur hagfræðingi í Spursmálum, umræðuþætti Stefáns Einars Stefánssonar. Það vakti athygli hrafnanna að þar hélt Helga Vala því fram að Evrópski seðlabankinn lánaði ríkjum fé til að halda niðri vöxtum á meðan þau væru í aðlögunarferli að upptöku evru. Kvaðst hún hafa þetta eftir Katrínu Ólafsdóttur hagfræðingi. Hrafnarnir telja að hér hafi Helga Vala ruglað saman eðli ERM II-ferlisins og þeim stuðningsúrræðum sem því geta fylgt. ERM II er gengissamstarf sem ætlað er að tryggja stöðugleika gjald­miðils á leið til evruupptöku. Það samstarf felur ekki sér sjálfkrafa aðgang að neinum lána­línum í evrum þótt dæmi séu um slík inngrip með aðstoð Evrópska seðlabankans við afar óvenjulegar aðstæður, eins og gerðist á tímum heimsfaraldursins, en þeim er ekki ætlað að fjármagna ríkissjóð eða halda niðri vöxtum með þeim hætti sem Helga Vala lýsti. Formlegu vikmörkin í ERM II eru almennt 15% til hvorrar áttar frá miðgengi gjald­miðilsins gagnvart evru, þannig að ansi mikið þarf að ganga á til að þau ákvæði virkjast. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 24. júní 2026.

Share this article