Innlent | mbl | 27.6.2026 | 11:19 Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Quang Lé, nú Davíð Viðarsson, er að hasla sér völl í flutningabransanum, þó bara með eina flutningabifreið skráða á nýtt fyrirtæki, NQ Moving. Samsett mynd/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Matvælalager í Sóltúni 20 Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fleiri vilja segja frá vændi Quang Le stefnir Landsbankanum Ein stærsta rannsókn Evrópu: Fimmtán grunaðir Gæti fengið allt að 12 ára fangelsi » Fleiri tengdar fréttir Nýtt flutningaþjónustufyrirtæki fasteignafélags víetnamska athafnamannsins Quang Lé, NQ Moving, hefur tekið til starfa. Af þessu segir RÚV í samantekt um málið en skemmst er að minnast umfangsmikillar rannsóknar á málum Lé sem legið hefur undir grun um mansal í á vettvangi veitingarekstrar síns. NQ fasteignir ehf. reka flutningaþjónustuna en fyrirtækið átti meðal annars Herkastalann við Kirkjustræti sem um árabil var hús Hjálpræðishersins. Það seldu NQ fasteignir fyrir 865 milljónir í fyrra. Að sögn RÚV er aðeins ein bifreið skráð í eigu NQ fasteigna, Mercedes Benz Sprinter-sendibifreið, þótt á heimasíðu NQ Moving megi sjá myndir af þremur flutningabifreiðum „Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að hægt er að leigja einn flutningsmann og Benz Sprinter-bifreiðina til að sinna flutningum fyrir 14 þúsund krónur á tímann auk virðisaukaskatts. Tveir flutningsmenn og bifreið kosta 18 þúsund krónur á tímann auk virðisaukaskatts,“ skrifar RÚV. Ein umfangsmesta rannsókn í sögu lögreglunnar Eins og mbl.is fjallaði um í fyrra var rannsóknin á Quang Lé og fjórtán öðrum sem tengjast meintu mansali, peningaþvætti og skipulagðri brotastarfsemi ein sú stærsta í sögu íslenskrar lögreglu og var fernt grunað um alvarlegustu afbrotin, Quang Le, sambýliskona hans, bróðir og faðir. Frétt af mbl.is Ein stærsta rannsókn Evrópu: Fimmtán grunaðir Þá greindi Morgunblaðið frá því árið 2024 að fyrstu ábendingar um misneytingu vinnuafls í fyrirtækjum Quang Lé, hefðu borist Alþýðusambandi Íslands rúmu ári áður. Ábendingarnar voru nafnlausar og virtust koma innan úr fyrirtækjunum. Frétt af mbl.is Nafnlausar ábendingar fyrsta vísbendingin Grunurinn staðfestur í heimsóknum ASÍ „Þetta voru ábendingar um bágan aðbúnað fólksins, það væri að vinna mjög langa vinnudaga, þau væru ekki að fá laun rétt greidd, svo kom jafnframt fram í einum skilaboðunum að fólk væri látið greiða til baka til atvinnurekandans hluta af laununum sínum,“ sagði Saga Kjartansdóttir, verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits ASÍ, við Morgunblaðið á sínum tíma. Fulltrúar á vegum ASÍ heimsóttu í kjölfarið vinnustaðina og var grunur þeirra að hluta staðfestur í þeim heimsóknum. Starfsfólk var þó ekki reiðubúið að leysa alveg frá skjóðunni og héldu margir sig til hlés, að minnsta kosti til að byrja með. Tengdar fréttir Matvælalager í Sóltúni 20 Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fleiri vilja segja frá vændi Quang Le stefnir Landsbankanum Ein stærsta rannsókn Evrópu: Fimmtán grunaðir Gæti fengið allt að 12 ára fangelsi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Ný könnun: Afar mjótt á munum Verður lærisveinn Óskars Hrafns á nýjan leik „Ég keypti bara Lite-bjórkassa og fór eftir honum“ Rústir vitans í Alexandríu fundnar Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lækkun olíuverðs ekki skilað sér í smásöluverð Stenst ekki skoðun Óttast að framlög snarhækki Grænlandsmálinu er ekki lokið Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Stenst ekki skoðun Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Nafnaleki augljós öryggisbrestur Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Ný könnun: Afar mjótt á munum Verður lærisveinn Óskars Hrafns á nýjan leik „Ég keypti bara Lite-bjórkassa og fór eftir honum“ Rústir vitans í Alexandríu fundnar Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitabylgjan slær öll met Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum Lækkun olíuverðs ekki skilað sér í smásöluverð Nafnaleki augljós öryggisbrestur Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Stenst ekki skoðun Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Nafnaleki augljós öryggisbrestur Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Loka