Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Quang Le fær ekki að opna bankareikning

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.3.2026 | 11:50 Quang Le fær ekki að opna bankareikning Landsbankinn þarf ekki að verða við kröfu Le um að fá að opna bankareikning á ný. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Matvælalager í Sóltúni 20 Fleiri vilja segja frá vændi Quang Le stefnir Landsbankanum Ein stærsta rannsókn Evrópu: Fimmtán grunaðir Gæti fengið allt að 12 ára fangelsi Breytingar á brunavörnum tengjast Quang Le » Fleiri tengdar fréttir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Landsbankann í máli sem Quang Le höfðaði gegn bankanum þar sem hann krafðist þess að opnað yrði aftur fyrir persónuleg viðskipti hans hjá bankanum. Le, sem hét um tíma Davíð Viðarsson, liggur meðal annars undir grun um mansal og peningaþvætti og eftir að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um margvísleg brot sagði Landsbankinn upp viðskiptasambandi við hann í mars árið 2024. Tæpu ári síðar óskaði Le eftir því að fá að opna aftur reikning í bankanum og vísaði til þess að lögregla hefði lokað öllum fyrirtækjum hans og persónulegum bankareikningi á meðan hann hefði stöðu grunaðs manns. Hann hefði hins vegar enn ekki verið ákærður. Hann þyrfti bankareikning svo hann gæti fengið greidd laun. Hann þyrfti slíkan reikning til að geta lifað af því enginn gæti lifað á Íslandi án bankareiknings. Hann hefði verið búsettur á Íslandi í meira en 18 ár, unnið, rekið fyrirtæki og greitt skatta til ríkisins. Hann teldi sig eiga rétt á að hafa virkan bankareikning. Frétt af mbl.is Quang Le stefnir Landsbankanum Gerði athugasemdir of seint Bankinn hafnaði þeirri beiðni, meðal annars með vísan til óbreytts áhættumats á grundvelli laga og reglna um peningaþvætti. Það gerðu fleiri fjármálafyrirtæki einnig og hélt Le því fram að Landsbankinn hefði sent sérstakar tilkynningar í upplýsingakerfi fjármálafyrirtækja og hefði þannig gert honum ómögulegt að opna bankareikninga annars staðar. Landsbankinn mótmælti því hins vegar og sagði slíkt kerfi ekki til. Í dómnum kemur fram að Le hafi ekki gert athugasemdir við uppsögnina á bankareikningum á sínum tíma, enda hafi komið fram í beiðni hans í febrúar 2025 að hann vildi opna nýjan bankareikning. Því megi ganga út frá því að hann hafi samþykkt rétt bankans til að segja upp bankareikningum hans árið áður. Það hafi verið of seint fyrir hann að gera athugasemdir 18 mánuðum síðar, á þeim tíma sem hann stefndi bankanum. Þá segir í dómnum að í ljósi umfangs og alvarleika þeirra brota sem Le liggur nú undir rökstuddum grun um að hafa framið, telji dómurinn að fallast megi á þann málatilbúnað Landsbankans að synjun hans á beiðni Le um stofnun nýs bankareiknings teljist eiga sér næga stoð í lögum. Bankinn var því sýknaður af kröfum Le. Frétt af mbl.is Gæti fengið allt að 12 ára fangelsi Tengdar fréttir Matvælalager í Sóltúni 20 Fleiri vilja segja frá vændi Quang Le stefnir Landsbankanum Ein stærsta rannsókn Evrópu: Fimmtán grunaðir Gæti fengið allt að 12 ára fangelsi Breytingar á brunavörnum tengjast Quang Le » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Quang Le fær ekki að opna bankareikning Nítján ára leikmaður í fangelsi fyrir kynferðisbrot NATO æfir á norðurslóðum og sendir Rússum skilaboð Bandaríska sendiráðið varar við mannránum Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Snjókoma um norðanvert landið Af hverju var dómurinn ómerktur? Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Færð getur spillst víða í nótt Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Quang Le fær ekki að opna bankareikning Nítján ára leikmaður í fangelsi fyrir kynferðisbrot NATO æfir á norðurslóðum og sendir Rússum skilaboð Bandaríska sendiráðið varar við mannránum Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spá hækkun vaxta og verðbólgu Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Mikil samlegðaráhrif vindorkuvera „Ósatt, bara lygar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Færð getur spillst víða í nótt Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article