Innlent | Morgunblaðið | 27.6.2026 | 13:23 Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Víkurbraut skartar fallegum gömlum húsum sem eiga sér langa sögu. Mörg þeirra bíða niðurrifs. Morgunblaðið/Eyþór Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Það er einkennileg tilfinning að aka inn í Grindavík og sjá þar bæ, sem fyrir aðeins þremur árum var líflegt samfélag og heimkynni tæplega 4.000 íbúa, standa nærri tóman í dag. Flestar innkeyrslur eru auðar og inn um glugga allmargra húsa sem eftir standa sést að allt hefur verið flutt á brott; aðeins tómir veggir og ber gólf standa eftir. Íbúafjöldi í Grindavík hefur tekið miklum breytingum vegna þeirra náttúruhamfara sem bærinn og íbúar hans hafa mátt þola. Þegar Grindavík var rýmd í nóvember 2023 þurftu allir íbúar bæjarins að yfirgefa heimili sín á svipstundu. Í dag eru skráðir íbúar með lögheimili í bænum aðeins um 900. Þar sem eitt sinn var heimili má nú aðeins sjá vinnusvæði. Morgunblaðið/Eyþór Niðurrifi miðar vel Eitt þeirra verkefna sem beið Grindavíkur er jarðhræringar tóku að róast var að rífa þau hús sem talin voru hafa orðið fyrir altjóni og vera ónýt. Eftir mikla undirbúningsvinnu hófst það verkefni 9. mars og er áætlað að niðurrifinu ljúki endanlega í haust. Að sögn Sigurðar Rúnars Karlssonar, eigna- og veitustjóra Grindavíkurbæjar, miðar verkefninu vel og er niðurrifi lokið á 21 húsi af þeim 49 sem þau örlög biðu. Margir ferðamenn leggja leið sína til Grindavíkur og sjást oft leita að góðum hraunmola til minningar. Morgunblaðið/Eyþór Flókið verkefni Sigurður leyfir sér að fullyrða að um sé að ræða eitt flóknasta niðurrifsverkefni sem unnið hafi verið að á Íslandi. Gríðarleg pappírsvinna fylgir hverju einasta niðurrifi auk þess sem miklar kröfur eru gerðar til að tryggja öryggi þeirra sem koma að verkefninu. „Þegar þú ert farinn að rífa eignir sem aðrir eiga, gera upp kostnað við aðra eigendur, semja við verktaka, gera rammasamning og vera jafnframt milliliður þá er ferlið orðið töluvert langt og flókið,“ segir Sigurður. Til að fylla upp í sprungur er notaðir hvítir jarðdúkar til að tryggja nýja undirlagið. Morgunblaðið/Eyþór Fyrir hvert einasta niðurrif þarf aðkomu byggingarstjóra og verktaka auk útgefins byggingarleyfis. Jafnframt þarf verkefnið að uppfylla lög um opinber innkaup, gera þarf rammasamning við verktaka og niðurrifssamning við húseigendur og standa að örútboðum. Hvert niðurrif þarf svo að skrá hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og tilkynna til Vinnueftirlitsins þar sem um er að ræða framkvæmd á áhættusvæði. Að sögn Sigurðar er hvert ferli einstakt þar sem húsin eru misjafnlega á sig komin og því er byrjað á byrjunarreit í nánast hvert einasta skipti. Vinnuvél að störfum að Víkurbraut í Grindavík. Gömlu húsin í götunni komu illa undan jarðskjálftunum. Morgunblaðið/Eyþór Öryggismál mikilvæg Sigurður segir að öryggismál hafi verið tekin mjög föstum tökum eftir banaslysið sem varð þann 10. janúar 2024 er Lúðvík Pétursson féll ofan í sprungu við störf sín í Grindavík. Sérstakt áhættumat fer nú fram í hvert skipti sem farið er inn fyrir hættusvæði. „Ef fara þarf inn fyrir hættusvæði er gert áhættumat. Sama hvort við séum bara að skoða húsin eða taka myndir er alltaf farið yfir áhættumat og það undirritað, svo allir séu með allt upp á tíu,“ segir hann. Sólarhringsvakt slökkviliðsins vaktar svo vinnusvæðin og fylgist með því hvort verktakar fylgi þeim öryggiskröfum sem samþykktar hafa verið. Stórar og þungar beltavélar eru notaðar til niðurrifs og segir Sigurður enga hættu á að þær falli í sprungurnar. Þar að auki er gerð sú öryggiskrafa að keyra þurfi beltavélina til baka á öruggan stað til þess að mega stíga út úr henni en hún er ákveðinn öryggisventill starfsmannsins á hættusvæðinu. Spurður hvað verði um lóðirnar á svæðinu segir Sigurður að hugmyndir séu uppi um opinn sögu- og minjagarð, þar sem reynt verði að segja sögu húsanna á svæðinu. Fáðu aðgang að þessari grein Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn. Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar. – það er ókeypis og án skuldbindingar. Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar ESB leggur á nýtt gjald Lionel Messi byrjar á bekknum Breska lögreglan fær ný gögn er tengjast hvarfi Madeleine McCann Stjórnarþingmaður talar gegn ESB: Ofmat á samningsstöðu Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitabylgjan hefur áhrif á vínframleiðslu Mótmæla frávísunarkröfu Skúla „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Segir utanaðkomandi áhrif valda verðbólgu Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Loka ostarennibraut eftir nokkur slys Trump í Skagafirði „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar ESB leggur á nýtt gjald Lionel Messi byrjar á bekknum Breska lögreglan fær ný gögn er tengjast hvarfi Madeleine McCann Stjórnarþingmaður talar gegn ESB: Ofmat á samningsstöðu Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nafnaleki augljós öryggisbrestur Tók ekki milljón dollara mynd Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Hitabylgjan slær öll met Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Loka ostarennibraut eftir nokkur slys Trump í Skagafirði „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Loka