Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 4.7.2026 | 22:45 Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík Rýming Grindavíkur í nóvember 2023. Íbúar fengu aðeins örfáar mínútur til að grípa það allra nauðsynlegasta af heimilum sínum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Atburðarásin eins og í bíómynd Myndskeið: Unnið að sprungufyllingum í Grindavík Skjálftahrina á Reykjanesskaga og nálægt Húsafelli Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Atburðarásin eins og í bíómynd Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið » Fleiri tengdar fréttir Jákvæð viðbrögð hafa verið og fyrstu svör hafa borist við nýrri spurningaskrá Þjóðminjasafns Íslands og Grindavíkurbæjar um jarðhræringarnar á Reykjanesskaga. Fólk er innt sagna um reynslu sína og sögur úr þeirri atburðarás sem hófst snemma árs 2020; það er jarðskjálftum, eldgosum og rýmingu Grindavíkur að kvöldi 10. nóvember 2023 með öllu því sem hefur fylgt á síðari stigum. „Við viljum fá sem flestar sögur og fjölbreyttar. Spurningaskráin er öllum opin til svörunar, hvort sem fólk stóð mjög nærri eða fjarri atburðunum. Allar sögur eru áhugaverðar. Ef fólk tengir ekki við ákveðnar spurningar er því frjálst að sleppa því að svara,“ segir Sigurlaug Dagsdóttir, sérfræðingur á þjóðháttasafni Þjóðminjasafnsins. Á vegum þjóðháttasafnsins fara árlega á gagnagrunninn sarpur.is nokkrar spurningaskrár og er svarað þar. Þar birtast einnig svör heimildafólks nafnlaust. Titill síðustu skrár var Meðganga, fæðingar og fyrstu mánuðir barnsins og talsverður fjöldi svara barst. Þau verða aðgengileg eftir nokkur ár og sama á við um Grindavíkurmálin nú. Eitt af öðru eru húsin í vesturhluta byggðarinnar í Grindavík, svo sem við Víkurbraut, sett í gröfukjaftinn enda ónýt eftir jarðskjálfta. mbl.is/Eyþór Einstakur brunnur fróðleiks Þjóðháttasafnið hefur safnað heimildum sem þessum frá árinu 1960 og þar eru varðveittar verðmætar heimildir um daglegt líf, verkhætti, hefðir og siði frá gamla bændasamfélaginu fram á líðandi stund. Sigurlaug Dagsdóttir. „Sótt er í heimildir þjóðháttasafns af mörgum, til dæmis í háskólarannsóknum á sviði sagnfræði, þjóðfræði, fornleifafræði og íslensku. Þarna má finna ótal svör heimildafólks sem safnað hefur verið í áratugi og þarna er orðinn til einstakur brunnur fróðleiks um mörg svið íslensks þjóðlífs,“ segir Sigurlaug og heldur áfram: „Ég vek athygli á því að fram að birtingu svara frá Grindavík, í ársbyrjun 2031, getur fólk breytt þeim og sett inn nýjar upplýsingar með því að hafa samband við þjóðháttasafnið. Slíkt er mikilvægt. Innan við þrjú ár eru frá rýmingu bæjarins og margir eru því væntanlega enn að vinna úr því raski og reynslu. En sögurnar er mikilvægt að fá, enda munu þær miklu skipta í framtíðinni til að draga lærdóm af. Það var mikilvægt að Grindavíkurbær vann þessa spurningaskrá með okkur, það var ómetanlegt að fá þeirra reynslu og sýn.“ Fjölmiðlar og bækur Jarðhræringarnar á Reykjanesi, eldgosin og flóttinn frá Grindavík eru meðal stærstu mála í Íslandssögunni á síðari árum og skrásetning því mikilvæg. Fjölmiðlar, svo sem þeir er starfa á heimsvísu, hafa frá þessu sagt. Einnig má nefna bókina Reykjanes vaknar eftir Sigurð Ólaf Sigurðsson, ljósmyndara Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Fáðu aðgang að þessari grein Til þess að lesa þessa frétt í fullri lengd þarftu að skrá þig inn. Nýskráning er ókeypis og án skuldbindingar. – það er ókeypis og án skuldbindingar. Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Atburðarásin eins og í bíómynd Myndskeið: Unnið að sprungufyllingum í Grindavík Skjálftahrina á Reykjanesskaga og nálægt Húsafelli Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Atburðarásin eins og í bíómynd Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þreyta í garð stóru miðlanna Trump ræddi við Pútín á þjóðhátíðardaginn Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík Paragvæ - Frakkland, staðan er 0:1 Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki látin vita af leka héraðssaksóknarans Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Trump ræddi við Pútín á þjóðhátíðardaginn Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 17 stiga hiti Stebbi Hilmars bætist við í hópinn á Skaganum Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Þreyta í garð stóru miðlanna Trump ræddi við Pútín á þjóðhátíðardaginn Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík Paragvæ - Frakkland, staðan er 0:1 Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Swift og Kelce gengu í það heilaga Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Allt að 17 stiga hiti Stebbi Hilmars bætist við í hópinn á Skaganum Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita

Share this article