Innlent | Morgunblaðið | 27.6.2026 | 13:20 ESB leggur á nýtt gjald Vörusending 90% af smápökkum sem fluttir eru til Evrópu koma frá Kína. Morgunblaðið/Rósa Braga Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Evrópusambandið leggur nýtt gjald á vörusendingar frá fyrirtækjum í löndum utan ESB til einstaklinga í aðildarríkjum sambandsins frá og með 1. júlí. Samkvæmt upplýsingum frá Póstinum verður gjaldið einnig lagt á sendingar frá EFTA-ríkjunum, Íslandi, Noregi, Liechtenstein og Sviss. Gjaldið nemur þremur evrum, eða 430 krónum, á allar sendingar undir 150 evrum eða sem samsvarar 21.600 krónum. Nýja gjaldið kemur til viðbótar við virðisaukaskatt og önnur innflutningsgjöld eftir því sem við á. Þetta er bráðabirgðalausn sem verður í gildi til 2. júlí 2028 á meðan unnið er að innleiðingu á umfangsmeiri tollabreytingum ESB. Framkvæmdastjórn ESB birti ekki formlegar leiðbeiningar sínar fyrr en 2. júní 2026, þó að reglurnar hafi verið samþykktar í febrúar síðastliðnum. Mest kemur frá Kína Um 90% af smápökkum sem fluttir eru inn til Evrópu koma frá Kína, að sögn Þórhildar Ólafar Helgadóttur, forstjóra Póstsins, og er ESB að stemma stigu við því með gjaldahækkuninni. „En þar sem við stöndum fyrir utan ESB bitna þessi gjöld líka á okkur,“ segir hún. „Reglan nær einkum til netverslana utan ESB, svo sem sendinga frá kínverskum netverslunum eins og Temu, Shein og AliExpress, en einnig til netverslana á Íslandi.“ Að hennar sögn fara 75% af gjaldinu til Evrópusambandsins en 25% til tollayfirvalda í því landi sem sendingin er flutt til. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að fyrir þá sem eru að selja mjög ódýrar vörur geti þetta haft í för með sér versnandi samkeppnisstöðu en hann telur að þetta hafi þó ekki áhrif á mörg fyrirtæki. „Ég myndi halda að þetta sé ekki stórt vandamál en náttúrulega vandamál engu að síður.“ Hann segir einnig að augljósar leiðir séu fram hjá þessu fyrir íslensk fyrirtæki. „Þeir sem eru með einhver umsvif á þessum markaði geta haldið lager innan Evrópusambandsins. Þá hafa vörurnar þegar verið tollafgreiddar inn í ESB og eru sendar þaðan til viðskiptavina. Sendingarnar teljast því innanlandssendingar og bera ekki þetta gjald.“ Ísland stendur utan tollabandalagsins og þegar Evrópusambandið er að reyna að vernda sínar atvinnugreinar, hvort sem það er framleiðsla eða verslun, þá getur Ísland sem þriðja ríki lent í því þrátt fyrir að vera með EES-samninginn. En það þýðir þó líka að íslenskir neytendur þurfa ekki að greiða tolla sem ESB leggur á innfluttar vörur frá löndum utan ESB. Haraldur Leví rekur vefinn Plötubúðin.is og selur vörur til einstaklinga innan ESB. Hann segir fyrirvarann hafa verið lítinn, hann hafi fengið tilkynninguna frá Póstinum sl. mánudag. „Náttúrulega algjört rugl“ „Ég veit ekki hvernig maður bregst við, hvort maður tapi núna á sölu fyrst um sinn á meðan maður innleiðir þetta eða slökkvi bara á útflutning. Þetta er auðvitað algjört rugl. Þetta eru ekki stórar upphæðir og ef það væri auðvelt að velta þessu út í verðlagið þá myndi þetta ekkert skipta öllu máli. En þetta er bara svo flókið í framkvæmd að ætla að innheimta þetta, hvað þá með þessum fyrirvara. Maður er bara með eitt sendingargjald, en að fara að bæta við einhverjum þremur evrum á vöru er það flókið að ég hef ekki nennt að setja mig inn í þetta.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar ESB leggur á nýtt gjald Lionel Messi byrjar á bekknum Breska lögreglan fær ný gögn er tengjast hvarfi Madeleine McCann Stjórnarþingmaður talar gegn ESB: Ofmat á samningsstöðu Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stenst ekki skoðun Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum Hitabylgjan hefur áhrif á vínframleiðslu „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Loka ostarennibraut eftir nokkur slys Trump í Skagafirði „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar ESB leggur á nýtt gjald Lionel Messi byrjar á bekknum Breska lögreglan fær ný gögn er tengjast hvarfi Madeleine McCann Stjórnarþingmaður talar gegn ESB: Ofmat á samningsstöðu Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heimsbyggðin réttir Venesúela hjálparhönd Breytingar sem hlutu ekki náð fyrri meirihluta Lækkun olíuverðs ekki skilað sér í smásöluverð ESB leggur á nýtt gjald Mest lesið Í gær Í vikunni Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Gæslan viðbúin komu Pauls Watsons Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki Loka ostarennibraut eftir nokkur slys Trump í Skagafirði „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Íslendingur fékk 3. vinning í EuroJackpot Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Loka