Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins skoðar nú leiðir til að reyna að sannfæra kínversk stjórnvöld til að draga úr útflutningi til sambandsins með það fyrir augum að draga úr risavöxnum viðskiptahalla við Kína. Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóri viðskiptamála hjá ESB, segir í viðtali við Politico að til að draga úr viðskiptahallanum þurfi Evrópusambandið þurfi að auka útflutning til Kína. Auk þess þurfi að skoða „hvernig betur megi stýra útflutningi Kína til Evrópusambandsins“. „Það er ljóst að skilvirkasta og besta leiðin fyrir framtíðar samskipti [við Kína] sé að tekist verði á þessu vandamáli frá báðum hliðum,“ bætti hann við. Nokkur aðildarríki ESB, þar á meðal Þýskaland, hvöttu framkvæmdastjórnina til þess að finna nýjar leiðir til að draga úr viðskiptahalla við Kína sem nemur um einum milljarði evra á dag. Krefjandi aðstæður í evrópskum iðnaði og lokun verksmiðja hefur ýtt undir áhyggjur af samkeppnisstöðu álfunnar gagnvart Kína. Šefčovič sagði að samninganefnd á vegum ESB sé stödd í Kína þessa vikuna til að eiga í „mjög opinskáum og hörðum“ viðræðum þar sem allir kostir komi til greina. Hann sagði framkvæmdastjórn ESB þurfa að ná „áþreifanlegum árangri“ hvað varðar stefnumótun um viðskipti við Kína fyrir formleg fundarhöld í Peking í byrjun október. Í umfjölluninni eru ummælin sögð endurspegla kúvendingu í viðskiptastefnu Evrópusambandsins gagnvart Kína. Sambandið horfi jafnvel til nálgunar bandarískra stjórnvalda í þeim efnum. Í stað þess að reiða sig fyrst og fremst á hefðbundnar ráðstafanir á sviði viðskiptavarna eftir að kínverskar vörur eru komnar til Evrópu felst breytt nálgun ESB meðal annars í aðgerðum sem miða að því að stýra vöruflutningum frá Kína til Evrópu upp að ákveðnu marki, auk þess sem lögð verður áhersla á að auka vöruútflutning ESB-ríkja. Stefnan er sögð svipa til nálgunar Evrópu og Bandaríkjanna á níunda áratugnum þegar náðu samkomulag náðist við Japan og Suður-Kóreu um að Asíuríkin myndu sjálf takmarka útflutning á bílum, stáli og raftækjum til Evrópu og Bandaríkjanna. Evrópusambandið er sagt horfa sértaklega til þess að auka útflutning á vörum sem teljast ekki viðkvæmar, eins og landbúnaðarvörum, lækningatækjum og bílum, til Kína. Politico bendir á að mögulegar takmarkanir á innflutningi frá Kína gætu haft ófyrirséðar afleiðingar og jafnvel leitt til þess að verð innlendra framleiðenda hækki. Í því samhengi er bent á að verðbólga á evrusvæðinu fór upp í 3,3% í ágúst og hefur ekki verið meiri síðan í september 2023.