Leikur Jórdaníu og Argentínu í J-riðli endaði með 3-1 sigri Argentínumanna. Leikurinn fór fram á leikvanginum í Dallas í Bandaríkjunum í nótt. Giovani Lo Celso skoraði fyrsta mark Argentínumanna á 19. mínútu leiksins. Lautaro Martinez skoraði annað markið á 31. mínútu. Mousa Altamari skoraði fyrsta og eina mark Jórdana í leiknumn á 55. mínútu. Lionel Messi geirnegldi svo sigur Argentínumanna með þriðja markinu á 80. mínútu. Giovani Lo Celso var valinn maður leiksins. Argentínumenn fara stigahæstir liðanna í J-riðli upp í 32-liða úrslitin með níu stig. Austurríki og Alsír eru jöfn með 4 stig hvor. Argentínumenn eiga næsta leik á móti Grænhöfðaeyjum á föstudag. Jórdanir halda hins vegar heim á leið enda fallnir úr keppni.