Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tæplega 66% laxa var sleppt

Read Full Article →

Alls veiddust 34.189 laxar í íslenskum laxveiðiám síðasta sumar. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hafrannsóknastofnunar. Er þetta aðeins meira en bráðabirgðatölurnar, sem birtar voru síðasta haust gerðu ráð fyrir en þá var talað um um að 33.000 laxar hefðu veiðst. Til saman­burðar veiddust 43.517 ­laxar sumarið 2024. Hlutfallslega dróst veiðin því saman um 21% á milli ára, eða um 9.318 laxa. Veiðin dróst saman á milli ára í öllum landshlutum. Mestur varð samdrátturinn á Vesturlandi og Norður­landi vestra. Frá aldamótum hafa að meðaltali veiðst tæplega 47.436 laxar á ári í laxveiðiám landsins. Veiðin síðasta sumar var því um 28% undir þessu meðaltali. Þegar heildarveiði í íslenskum ám er skoðuð frá aldamótum kemur í ljós að sex sinnum hefur hún lakari en sumarið 2025. Besta laxveiðiár Íslandssögunnar var árið 2008 þegar ríflega 84.100 laxar veiddust. Árið 2009 veiddust um 74.400 laxar og sumarið 2010 tæplega 75.000. Vert er að geta þess að þessi ár hafði góð veiði í hafbeitarám mikið að segja, sem dæmi veiddust um 29.000 laxar í hafbeitarám sumarið 2008. Af þeim löxum sem veiddust síðasta sumar var 22.506 löxum sleppt (veiða og sleppa) sem þýðir að sleppihlutfallið var 65,8%. Það er örlítið lægra hlutfall en árið 2024 þegar það var 67,5%. Þess ber að geta að sleppihlutfallið hafði aldrei í sögunni verið hærra en sumarið 2024 og hlutfallið sumarið 2025 var það næsthæsta í sögunni. Til þess að setja þessar tölur í samhengi þá var sleppihlutfallið 42,7% fyrir tíu árum og 19,2% fyrir tuttugu árum. Fjallað er um málið í sérblaðinu Veiði sem fylgdi Viðskiptablaðinu.

Share this article