Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gæslan á leið að hvalveiðiskipunum: „Við munum gæta

Read Full Article →

Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, lagði af stað úr Reykjavíkurhöfn um klukkan þrjú síðdegis. Stefnan er sett á slóðir hvalveiðibáta Hvals hf. og buist við að það verði komið að hvalbátunum seint í nótt eða í fyrramálið. Ástæðan eru hótanir Paul Watson-samtakanna, sem sigldu inn í íslenska efnahagslögsögu í gær. Samtökin hafa hótað því að stöðva hvalveiðiskipin. „Við munum gera það sem þarf að gera til að vernda líf og limi og forða slysum, Það á við um báða aðila. Við verðum þarna með skip og vel búna menn,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Hann segir að Landhelgisgæslan taki stöðuna alvarlega og viðbrögðin hafi verið undirbúin í samráði við dómsmálaráðherra.

Share this article