Í veiðiheiminum eru menn jafnan myndaðir keikir með lax, helst stórlax, við árbakkann. Veiðimaðurinn Björgvin Guðmundsson er undantekningin sem sannar regluna. Björgvin, sem er fyrrverandi ritstjóri Viðskiptablaðsins og núverandi framkvæmdastjóri KOM, hefur skapað sér allt aðra sérgrein við laxveiðiár landsins. Í rúman áratug hefur hann verið myndaður við sama verkefnið: að opna hlið. Ástæðan fyrir þessu er að undirritaður hefur um árabil verið veiðifélagi Björgvins. Í öllum veiðiferðum hefur Björgin notið þeirra forréttinda að vera farþegi í veiðijeppanum gegn því hóflega gjaldi að opna öll hlið. Hvert sem leiðir okkar hafa legið saman, hvort sem það er í Hrútafjarðará, Miðá í Dölum, Flókadalsá í Borgarfirði eða Laxá í Kjós hefur Björgvin stigið samviskusamlega út úr bílnum og gengið að næsta hliði. Yfirleitt hefur Björgvin sinnt þessari skyldu sinni af sömu festu og yfirvegun einkennt hefur feril hans í fjölmiðlum og almannatengslum. Einstaka sinnum hefur hann verið úrillur við þessa iðju. Á það sérstaklega við í norðanátt og láréttri rigningu eða þegar keðjan er stíf og hliðið þungt. Hann má samt eiga það að á endanum hefur honum alltaf tekist að opna hlið. Úr er orðið einstakt safn mynda sem spannar um áratug og ótal hlið. Óhætt er að fullyrða að fáir Íslendingar hafi verið jafn oft myndaðir við að opna hlið og Björgvin Guðmundsson. Hvort það teljist afrek eða ekki verður lesandinn að meta sjálfur. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Þjónustulundin hefur ávallt verið eitt af helstu einkennum Björgvins, sérstaklega í byrjun veiðiferða. Hér er hann við Miðá sumarið 2024. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Björgvin glaður í bragði með litinn Jager síðasta sumar að opna hlið að slóða sem liggur að Tunguá, sem er hliðará Miðár í Dölum. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Hér stóð hliðið eitthvað á sér en Björgvin leysti það fagmannlega. Myndin er tekin við Miðá í Dölum sumarið 2024. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Björgvin á góðviðrisdegi í Miðá í Dölum síðasta sumar að opna hlið. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Hér var Björgvin orðinn viðskotaillur enda búinn að opna mörg hlið túrnum. Myndin er tekin í Miðá sumarið 2024. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Æfingin skapar meistarann segir máltækið. Hér má sjá Björgvin opna hlið með annarri höndinni. Myndin er tekin við Miðá sumarið 2023. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Björgvin á það til að mótmæla ef hliðaopnanir eru of tíðar og gerir hann það oft með því að snúa baki í veiðifélagann. Myndin er tekin við Miðá 2022. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Hér er Björgvin búinn að opna sitt tuttugasta hlið í Miðá sumarið 2022. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Hér er Björgvin með sixpensarann öfugan á höfðinu við eitt sitt uppáhaldshlið í Hrútafjarðará. Þetta er hlið sem þarf að loka með bolta og splitti. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Hér er Björgvin hoppandi glaður við Hrútafjarðará sumarið 2018. Líklega var veiðitúrinn að hefjast þarna. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Björgvin opnar hliðið niður að Hamarshyl í Hrútafjarðará og horfir dreymandi í átt að veiðistaðnum Bálki, sem er við gömlu þjóðvegarbrúna. Tekið sumarið 2020. © Trausti Hafliðason (Trausti Hafliðason) Samskiptamátinn er stundum ekki upp á tíu hjá framkævmdastjóra KOM, sem hér opnar hliðið nður að Dumbafljóti í Hrútafjarðará sumarið 2019. Fjallað er um málið í sérblaðinu Veiði , sem fylgir Viðskiptablaðinu.