Innlent | mbl | 28.6.2026 | 19:16 Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Fjölbreytt landslag blasir við göngufólki á Jakobsveginum, sem liggur um sveitir, fjalllendi og sögufræga bæi. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Hitabylgja í Evrópu Hitamet slegið í Póllandi Hitamet féll í Þýskalandi annan daginn í röð Hitabylgjur og mannleg heilsa – hvað gerist? Frakkar fresta Pride-göngu til hausts Ungbarn lést eftir björgun úr bíl » Fleiri tengdar fréttir Hópur kvenna gengur um þessar mundir hinn víðfræga Jakobsveg á Spáni við krefjandi aðstæður. Mikil hitabylgja hefur geisað á svæðinu og fer hitinn vel yfir 40 stig yfir daginn. Konurnar láta þó ekki deigan síga, hafa lagað gönguna að hitanum og halda ótrauðar áfram, þótt dagsleiðirnar séu gjarnan 20 til 30 kílómetrar. Gönguhópurinn lætur ekki hitann slá sig út af laginu. Ljósmynd/Aðsend „Þetta var orðið eins og dæmisagan um lambið og úlfinn. Lambið fór að vakna sífellt fyrr á nóttunni til að vera undan úlfinum og það má segja að við höfum gert eins. Frá því að gangan hófst höfum við farið að vakna sífellt fyrr til að vera á undan hitanum og erum nú farnar að fara á fætur rúmlega klukkan fimm á morgnanna,“ segir Margrét Jónsdóttir Norðfjörð farastjóri hópsins sem er á vegum ferðaskrifstofunnar Mundó í samtali við mbl.is. Ævintýralegt. Ljósmynd/Aðsend „Við höfum samt ekki alveg sloppið við hitann og höfum alveg þurft að ganga í 40 stiga hita. Það var bara eins og að vera með hárblásara á heitustu hitastillingu framan í sig, það var svo heitt og það hefur í raun ekki verið hægt að ganga neitt eftir hádegi,“ segir Margrét. Margrét segist ekki muna til þess að hafa lent í jafn miklum hita áður en hún er svæðinu afar kunnug, enda þrautreyndur fararstjóri og hefur gengið Jakobsveginn árlega í mörg ár. Með henni sem fararstjórar eru Elínborg Sturludóttir, dómkirkjuprestur, Þórhalla Andrésdóttir, sjúkraþjálfari og svo Anna Ingadóttir, kennslufræðingur. Hópurinn er nú á áttunda göngudegi og er staddur í bænum Castildelgado en Margrét vonast nú til þess að vera hólpinn frá steikjandi hitanum í bili, þar sem útlit sé fyrir rigninu næstu daga. Sögufræg leið með tengingar við kraftaverk Jakobsvegurinn er ein frægasta gönguleið heims og var áður ein helsta pílagrímaleið kristinna manna í Evrópu. Vegurinn er einnig gjarnan tengdur við ýmis kraftaverk, en hann heitir í höfuðið á heilögum Jakobi sem var einn lærisveina Jesú Krists og stundaði trúboð á þessum slóðum fyrir um 2000 árum. Stund milli stríða á göngunni. Ljósmynd/Aðsend „Líkamsleifar Jakobs fundust hér en á 9. öld höfðu þetta verið landamæri milli kristinna manna og mára sem höfðu þá tekið yfir allan Íberíuskagann. Það var áhættusamt að vera hérna en síðan þegar Íberíuskaginn hafði verið endurheimtur fundust líkamsleifar heilags Jakobs og þar rís dómkirkjan í Santiago de Compostela," segir Margrét. Stórbrotið útsýni. Ljósmynd/Aðsend „Fólk tók því að sækja hingað en í kaþólskri trú skiptir miklu máli að hafa sannanir fyrir guðdóminum og hér rísa því margar kirkjur sem tengjast kraftaverkum. Þar á meðal var Íslendingurinn Hrafn Sveinbjarnarson, frá Hrafnseyri, en hann gekk Jakobsveginn á miðöldum og fékk svo miklar upplýsingar um læknisfræði að hann gaf út lækningabók úr því sem hann lærði við heimkomu,“ segir hún og bætir við að lokum: „Það má því svo sannarlega segja að þetta sé enn kraftaverkaleið, enda höfum við nú fengið kynnast því.“ Tengdar fréttir Hitabylgja í Evrópu Hitamet slegið í Póllandi Hitamet féll í Þýskalandi annan daginn í röð Hitabylgjur og mannleg heilsa – hvað gerist? Frakkar fresta Pride-göngu til hausts Ungbarn lést eftir björgun úr bíl » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Dramatískur sigur Keflavíkur – Valur vann á Akureyri Stjarnan fór illa með KA Hafna tilboði Chelsea Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump yfirgefur landið Tók ekki milljón dollara mynd „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Hitabylgjan hefur áhrif á vínframleiðslu Mest lesið Í gær Í vikunni Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Trump yfirgefur landið Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Fjöldi ferða Baldurs fellur niður Gestir Orkumóts strandaglópar í Eyjum Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Trump í Skagafirði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki ESB leggur á nýtt gjald Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Dramatískur sigur Keflavíkur – Valur vann á Akureyri Stjarnan fór illa með KA Hafna tilboði Chelsea Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Umræðan Bjólfur, Grendill og mamma hans „Við viljum sjá hver stefna okkar er“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nafnaleki augljós öryggisbrestur „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ ESB leggur á nýtt gjald Hefur ekki áhyggjur af fjölgun kínverskra ferðamanna Mest lesið Í gær Í vikunni Réðst á hóp drengja sem renndi sér of nærri Áratuga landamerkjadeila til lykta leidd Banna viðtöl og myndbandsupptökur Trump yfirgefur landið Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Óánægðir með fyrirkomulag veiðanna Flugeldar í Safamýri um miðnætti Fjöldi ferða Baldurs fellur niður Gestir Orkumóts strandaglópar í Eyjum Spretti út úr búðinni með peysu í hendi Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Getur varðað allt að átta ára fangelsi“ Trump í Skagafirði „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar Quang Lé stofnar flutningafyrirtæki ESB leggur á nýtt gjald Sólartíðin tekur enda og væta í kortunum Stenst ekki skoðun Deila um hvort kæra eigi sendiboða sem benti á öryggisveikleika Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku