Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslendingur til bjargar konu í Toulouse

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.6.2026 | 14:02 | Uppfært 14:20 Íslenskur hjúkrunarfræðingur til bjargar konu í Toulouse Aldís ásamt manni sínum, Jakob Sindra Þórssyni, í afmælisför móður hans sem tók óvænta stefnu í hitanum í Toulouse í gærmorgun. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hitabylgja í Evrópu Hitabylgjan slær öll met Yfir 35 gráður hjá 150 milljónum manna Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Aldrei heitara í Sviss í júní: Hitamet fallið Kennarar í verkfall vegna hitabylgjunnar » Fleiri tengdar fréttir „Við vorum þarna nokkur saman í neðanjarðarlestinni á leið frá gististaðnum okkar í úthverfi Toulouse í gærmorgun og á leið niður í bæ,“ segir Aldís Erna Vilhjálmsdóttir, hjúkrunarfræðingur á líknardeild Landspítalans, í samtali við mbl.is en hún var viðstödd þegar ung kona í lestinni fékk krampakennt flogakast og hneig niður, viðstöddum í yfirfullri lest til skelfingar. „Hitinn hérna er búinn að vera rosalegur, hefur farið í mest 43 gráður,“ segir hjúkrunarfræðingurinn sem staddur er við tólfta mann í þessari suðurfrönsku borg þar sem fjölskyldan fagnar sextugsafmæli tengdamóður Aldísar, Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings, sem rætt hefur rannsóknir sínar við Morgunblaðið og mbl.is en hún fann landnámsmanninn Bjólf í bátskumli í Firði í Seyðisfirði á dögunum. Afmælisbarnið, Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur, í gráum kjól hægra megin við miðju en við hlið hennar situr raunar annar fornleifafræðingur, Knut Paasche maður hennar, deildarstjóri tækni- og stafrænnar fornleifadeildar við menningarminjastofnunina Norsk institutt for kulturminneforskning. Ljósmynd/Aðsend Full lest í manndrápshita „Lestin var vel pökkuð, hitinn alveg steikjandi í henni og loftlaust og þá hrynur þessi kona skyndilega í gólfið og byrjar í krampakasti,“ segir Aldís og bætir því við aðspurð að konan hafi ekki verið með armband á sér til jarteikna um flogaveiki, „þannig að ég vissi eiginlega ekkert hvað var að henni“, segir hjúkrunarfræðingurinn sem þegar tók stjórnina á vettvangi og sagði viðstöddum til. „Ofþornun og loftleysi í lestinni gæti alveg verið ástæðan en hún var í krampakasti í um það bil mínútu, ég reyndi að hafa stjórn á aðstæðum og segja fólki til sem var ekki auðvelt þar sem allir töluðu bara frönsku en ég þurfti að tala ensku,“ segir Aldís frá, „aðalmálið var að láta hana liggja í góðri stellingu og láta þetta líða hjá,“ heldur hún áfram. Fór í öndunarstopp Hún hélt undir höfuð konunar sem var algjörlega meðvitundarlaus í kastinu en hætti svo að anda. „Ég ýtti á bringubeinið og kallaði til hennar og þá byrjaði hún fljótlega að anda en hún var orðin blá í framan á tímabili. Hún lá svo þarna mjög illa áttuð og átti greinilega erfitt með andardrátt, þá var einhver búinn að ýta á neyðarhnapp í lestinni sem var sem betur fer stutt frá næstu stöð og stoppaði þar,“ segir Aldís. Aldís og Jakob ásamt afkvæmum í frönsku hitabylgjunni þar sem hjúkrunarfræðingurinn kom konu til aðstoðar á ögurstundu í lest í gær. Ljósmynd/Aðsend Konan hafi fljótlega náð að standa upp og í framhaldinu getað gengið sjálf út úr lestinni í fylgd konu sem var með henni og lestarvarða. „Þá var enginn sjúkrabíll kominn enn þá en lestin hélt svo áfram svo ég veit ekkert hvernig fór með þessa manneskju eftir það, við vorum þarna lengst af þrjú hjá henni á meðan hún lá á gólfinu og farþegum var greinilega brugðið en það var svo sem ekki mikið sem hægt var að gera við þessar aðstæður,“ segir Aldís Erna Vilhjálmsdóttir hjúkrunarfræðingur, stödd í Toulouse í Frakklandi þar sem evrópska hitabylgjan hefur geisað hve gerst síðustu daga en er nú á undanhaldi og spáð undir 30 gráðum á mánudaginn. Tengdar fréttir Hitabylgja í Evrópu Hitabylgjan slær öll met Yfir 35 gráður hjá 150 milljónum manna Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Aldrei heitara í Sviss í júní: Hitamet fallið Kennarar í verkfall vegna hitabylgjunnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Guðrún Gígja ráðin yfirlögfræðingur Hitabylgjan slær öll met Flugvél flaug á skýjakljúf Myndskeið: Tékkum skellt úr leik Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lægri ávöxtun hjá séreignarsjóðunum Verðbólgan eykst og mælist 5,2% Þjóðaratkvæði, þjóðargrafreitur og milljarðarnir í boltanum Hildur heitir að standa við stóru orðin Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Borgin viðurkennir veruleg mistök „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Hildur heitir að standa við stóru orðin Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku Nýjast á mbl.is » Guðrún Gígja ráðin yfirlögfræðingur Hitabylgjan slær öll met Flugvél flaug á skýjakljúf Myndskeið: Tékkum skellt úr leik Íslendingur til bjargar konu í Toulouse Umræðan Hreinskilnisstjórnmál Neyðarástand Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar vegna loftslagsmála er slæmt meðal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er stórhættulegt“ Hitabylgjan skellur með fullum þunga á Danmörku Hildur heitir að standa við stóru orðin Gögn í virkri rannsókn birt á netinu Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er stórhættulegt“ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Sýndu óvart nöfn Þekktur umboðsmaður á Þingvöllum Tuttugu og tveir sóttu um starfið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Fyrsta utanlandsferð sonarins í svæsinni hitabylgju Borgin viðurkennir veruleg mistök „Það eru ekki allir að róa í sömu átt“ Hildur heitir að standa við stóru orðin Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Borgin viðurkennir veruleg mistök Lúmskt algengir sjúkdómar Ráða í sex til sjö ný störf Myndin sem setti Noreg á hliðina Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Af hverju er fólk að selja miðana sína? Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Share this article