Brasilía vann 2-1 sigur gegn Japan eftir ótrúlega dramatík í lokin. Taugar Rayan, Bruno Guimaraes og Martinelli voru þær rólegustu af þeim 213 Brasilíumönnum sem til eru er sigurmarkið kom. Martinelli skoraði í stöngina og inn en Suzuki í marki Japan kom þó fingrum á boltann. Brasilíski sóknarþunginn var að lokum of mikill fyrir Japan sem leiddu þó lengi. Brasilíumenn voru arfaslakir í fyrri hálfleik og útlitið var svart eftir mark Sano í fyrri hálfleik. Ancelotti náði því besta fram úr sínum mönnum í seinni hálfleik og var brasilíska sóknin linnulaus. Japanir björguðu á ótrúlegan hátt eftir 52 mínútur þar sem boltinn skoppaði eins og gorkúla fram og til baka á marklínu. Skömmu síðar jafnaði Casemiro metin með skalla eftir eina af ófáum fyrirgjöfum Brasilíumanna. Þær virkuðu ekki neitt í fyrri hálfleik en sköpuðu usla í þeim síðari. Vinicius skoraði nærri því mark mótsins þegar hann fíflaði alla japönsku vörnina og nær alla áhorfendur á heimsvísu með gabbhreyfingum sínum. Suzuki í markinu gerði virkilega vel er hann blakaði boltanum í stöngina af stuttu færi. Martinelli skoraði svo sigurmarkið á 95. mínútu og sambadansinn dreifði úr sér um allan völlinn í Houston. Allt það helsta úr leiknum: Brasilíumenn unnu 2-1 sigur gegn Japan og fara áfram í 16-liða úrslit HM karla í fótbolta. Japanir voru lengst af með afar þéttan varnarmúr og leiddu 0-1 í hálfleik. Í þeim seinni kviknaði líf í Brasilíumönnum sem unnu með marki á lokasekúndunum. Hverjum mætir Brasilía? Brasilía fer áfram í 16-liða úrslit en Japanar sitja eftir með afar, afar sárt ennið. Þeir geta þó huggað sig við að þeir 16 HM mót í viðbót til að ná 100 ára plani sínu til að vinna HM. Brasilía mætir sigurvegaranum úr leik Fílabeinsstrandarinnar og Noregs sem er á morgun.