Leikur Marokkós og Hollands fór heldur hægt af stað og staðan var enn 0-0 þegar liðin héldu til búningsklefa í hálfleik. Cody Gakpo kom Hollendingum yfir á 72. mínútu. Það leit allt út fyrir að markið myndi duga þeim til að komast áfram í 16-liða úrslit en í uppbótartíma jafnaði Issa Diop metin fyrir Marokkóa. Engin mörk voru skoruð í framlengingu og úrslitin réðust því á vítapunktinum. Æsispennandi vítaspyrnukeppni Í fyrstu umferð vítaspyrnukeppninnar komust Hollendingar yfir. Marokkóar jöfnuðu í næstu umferð. Bæði lið skoruðu í þeirri þriðju en hvorugu liði tókst að skora í fjórðu umferð. Það var því allt jafnt fyrir síðustu umferðina. Yassine Bounou, markvörður Marokkóa, varði vítaspyrnu Hollendingsins Crysencio Summerville og úrslitin gátu því ráðist með síðustu spyrnu leiksins. Hana tók Ismael Saibari sem setti boltann örugglega í vinstra hornið. Mæta gestgjöfunum í liði Kanada Marokkóar eru því komnir áfram í 16-liða úrslit þar sem þeir mæta Kanadamönnum. Lið Marokkós komst alla leið í undanúrslit á síðasta móti og endaði í 4. sæti. Hollendingar eru á leið heim en þeir duttu líka úr leik á síðasta móti í vítaspyrnukeppni, þá í átta liða úrslitum gegn ríkjandi heimsmeisturum frá Argentínu. Næsti leikur í 32-liða úrslitum er viðureign Fílabeinsstrandarinnar og Noregs. Leikurinn hefst klukkan 17 og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2.