Frakkland og Marokkó mætast í fyrsta leik 8-liða úrslita HM karla í fótbolta í dag. Sömu lið mættust í undanúrslitum á heimsmeistaramótinu í Katar fyrir fjórum árum þar sem Frakkar höfðu betur, 2-0. Bæði lið töpuðu þá næstu leikjum sínum, Frakkar úrslitaleiknum gegn Argentínu í vítaspyrnukeppni og Marokkómenn bronsleiknum á móti Króatíu, 2-1. Dagkráin í dag 19:35 Stofan [RÚV] 20:00 Frakkland - Marokkó [RÚV] 22:05 HM kvöld [RÚV] Frakkar hafa unnið alla leiki sína á mótinu hingað til og ekki lent í teljandi vandræðum. Þeir unnu Paragvæ í 16-liða úrslitum, 1-0. Marokkómenn gerðu jafntefli við Brasilíu í C-riðli og enduðu í öðru sæti hans á markatölu. Þeir unnu svo Holland í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum og Kanada sannfærandi, 3-0, í síðustu umferð. Alls hafa Frakkland og Marokkó mæst sex sinnum í gegnum tíðina; Frakkar hafa unnið fjóra leiki og tvisvar hafa þau gert jafntefli.