Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.

Read Full Article →

Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samfélagsmiðlum í nótt. Paul Watson-samtökin hafa heitið því að stöðva hvalveiðar við Íslandsstrendur. Skipið Bandero er á Íslandsmiðum en hefur ekki komist að hvalveiðiskipunum Hval 8 og 9. Varðskipið Þór fylgir Bandero eftir. Hvalur 9 landaði tveimur langreyðum í Hvalfirði í gær. Í færslu Paul Watson-samtakanna segir að önnur langreyðanna hafi verið kálffull. „10 hvalir drepnir hingað til og vertíðin er rétt að byrja. En Bandero er að koma til Íslands [...] við ætlum að leggja til atlögu við olíufélagið sem heldur þessari slátrun gangandi. Saman munum við stöðva þetta fyrir fullt og allt,“ segir í færslunni.

Share this article