Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fögnuðu nýjum frjálsíþróttavelli í Suðursveit

Read Full Article →

Nýr frjálsíþróttavöllur var vígður við Hrollaugsstaði í Suðursveit um liðna helgi við mikinn fögnuð heimafólks. Sjálfboðaliðar í Ungmennafélaginu Vísi hafa unnið að vellinum í eitt ár segja opnun hans marka tímamót í íþróttasögu Suðursveitar. Tómas Nói Hauksson sendi fréttastofu þessar myndir af frjálsíþróttamótinu, sem hófst á Alþjóðlega Ólympíudaginn. Nýr Vísisvöllur í Suðursveit var vígður um liðna helgi. Ungmennafélagið hefur unnið að uppbyggingu vallarins í heilt ár. Á mótinu var slegið Íslandsmet í 60 metra hlaupi kvenna utanhúss. Jafnframt náðist besti tími sem skráður hefur verið í 60 metra grindahlaupi karla utanhúss og í fyrsta sinn var keppt utanhúss í 60 metra hjólastólaspretti kvenna.

Share this article