Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Á annan tug útihátíða um versló

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.7.2026 | 12:30 Á annan tug útihátíða um versló Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Eftir vætusaman júlímánuð á suður- og vesturhluta landsins bíða eflaust margir eftir því að bruna út úr bænum um verslunarmannahelgina í leit að betri tíð. En hvert skal halda? Á kortinu má sjá helstu viðburði þarnæstu helgar og að vanda er úrvalið fjölbreytt. Hin hefðbundna útihátíðarstemning er enn á sínum stað en fjölskylduhátíðir og samfélagslegir viðburðir hafa einnig fest sig í sessi. Á Sauðárkróki koma ungmenni landsins saman á Unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið hefur verið árlega frá árinu 2002. Mótið er vímulaus fjölskyldu- og íþróttahátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11-18 ára taka þátt í ýmsum íþróttagreinum og annarri fjölbreyttri afþreyingu með fjölskyldunni. Öll ungmenni geta tekið þátt. Ein með öllu Bæjarhátíðin Ein með öllu á Akureyri hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár. Hátíðin er ein af fjölskylduvænustu hátíðum landsins og hefur þann kost að dagskráin teygir sig víða um bæinn. Samhliða stútfullri tónleika- og fjölskyldudagskrá er mikið um að vera í íþrótta- og útivistargeiranum á Akureyri, en til að mynda býður hlaupaserían Súlur Vertical hlaupurum og áhugafólki upp á stórbrotna hlaupaupplifun um fjöll og firnindi Eyjafjarðar. Innipúkinn Þeir sem kjósa malbik fram yfir græna grund um verslunarmannahelgina geta skellt sér á tónlistarhátíðina Innipúkann í Austurbæjarbíó í Reykjavík. Hátíðin er frábrugðin hinum hefðbundnu útihátíðum að því leyti að hún er fyrst og fremst hrein tónlistarhátíð í kunnuglegu borgarumhverfi. Þjóðhátíð í Eyjum Vart þarf að kynna menningararfinn sem útihátíðin í Herjólfsdal er. Það jafnast fátt á við góða verslunarmannahelgi í Eyjum. Þar upplifa gestir allt frá fjölmennasta hópsöng landsins í brekkunni í Herjólfsdal yfir í notalega heimsókn í hvítu tjöld heimamanna og risastóra brennu. Neistaflug í Neskaupstað Neskaupstaður fyllist af lífi á Neistaflugi ár hvert. Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir alla aldurshópa, svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á dagskránni eru m.a. tjaldmarkaður, hoppukastalar, brunaslöngubolti, dansleikir og fjölmargir tónleikar með landsþekktum tónlistarmönnum. Síldarævintýri á Siglufirði Þeir sem ætla að skella sér til Siglufjarðar um verslunarmannahelgina eiga von á góðu, en í ár eru 35 ár síðan fyrsta Síldarævintýrið var haldið. Fjölskylduhátíðin skartar fjölbreyttri dagskrá þar sem meðal annars má finna bjórleika, froðufjör og síldarsöltun. Nábrókin í Trékyllisvík Nábrókin er lítil og fjörug útihátíð í Trékyllisvík í Árneshreppi á Ströndum. Hátíðin einkennist af heimalegri sveitastemningu, tónleikum og mýrarbolta. Hér hafa nokkrar helstu hátíðir verið nefndar, sem eru skipulagðar, en fólk mun sem fyrr safnast saman víðar um landið þessa helgi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Leeds að kaupa enska landsliðsmanninn Á annan tug útihátíða um versló Beint flug til Kína í október Gæti hrundið af stað kjarnorkukapphlaupi Listaverk af HM-hetjunni eyðilagt Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Smæð Íslands okkar mesti styrkur Málarar með tárin í augunum í vætunni Vald landlæknis jafnað við vald dómstóla Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Varað við vindi Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Leeds að kaupa enska landsliðsmanninn Á annan tug útihátíða um versló Beint flug til Kína í október Gæti hrundið af stað kjarnorkukapphlaupi Listaverk af HM-hetjunni eyðilagt Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Segist ekki hafa rætt við Jetten Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót Velferðin þarf verðmætasköpun Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Varað við vindi Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article