Rósa Björk Brynjólfsdóttir sækist eftir formannssæti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins í byrjun mars. Svandís Svavarsdóttir sækist ekki eftir endurkjöri. Þetta kemur fram í framboðstilkynningu sem Rósa birti á Facebook-síðu sinni í dag. Hún var kjörin á þing fyrir Vinstri græna árið 2016, en sagði sig úr flokknum árið 2020 og gekk til liðs við Samfylkinguna. Rósa snéri aftur til liðs við VG árið 2024. Segir flokkinn standa á tímamótum Í tilkynningunni segir Rósa flokkinn standa á tímamótum sem feli í sér einstakt tækifæri til að blása lífi í ýmiss konar stefnumál og hugmyndafræði. „Mín áherslumál ef ég næ kjöri sem formaður VG eru að styrkja og skerpa málflutning okkar í umhverfismálum og standa styrkan vörð um mannréttindamálin. Vinna gegn vaxandi misskiptingu og fátækt og halda á lofti áherslum friðar og meiri samvinnu við líkt þenkjandi ríki á alþjóðasviðinu,“ segir Rósa. Í tilkynningunni kveðst Rósa hlakka til að fara í uppbyggingu og viðspyrnu Vinstri grænna, þar sem hún hafi kynnst frábæru fólki og kærum vinum í gegnum tíðina. „Það verða brekkur og stundum súld, en sólardagarnir verða frábærir og miklu fleiri!,“ segir Rósa.