Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rósa Björk er nýr formaður Vinstri grænna

Read Full Article →

Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörinn formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Hún fékk 95 atkvæði af 101. Hlynur Már Ragnheiðarson sóttist einnig eftir formannskjöri. Rósa Björk var kjörin á þing fyrir Vinstri græna árið 2016, en sagði sig úr flokknum árið 2020 og gekk til liðs við Samfylkinguna. Rósa sneri aftur til liðs við VG árið 2024. Svandís Svavarsdóttir ákvað að gefa ekki kost á sér sem formaður áfram. Hún flutti sína síðustu ræðu sem formaður flokksins í gær. Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður gaf heldur ekki kost á sér áfram og því er ljóst að mikil endurnýjun verður í forystunni.

Share this article