Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eiginfjárkrafa Íslandsbanka eykst

Read Full Article →

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur hækkað viðbótareiginfjárkröfu Íslandsbanka eftir árlegt mat sitt á eiginfjárþörf bankans. Hækkunin skýrist af aukinni útlánaáhættu vegna vaxtar lánasafns utan heimamarkaðar. Þetta kemur fram í kauphallartilkynningu bankans. Samkvæmt niðurstöðu könnunar- og matsferlis (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) þarf Íslandsbanki frá og með 30. júní að viðhalda viðbótareiginfjárkröfu sem nemur 1,8% af áhættugrunni. Það er hækkun um 0,4 prósentustig frá fyrra mati Fjármálaeftirlitsins. Við hækkunina eykst heildareiginfjárkrafa bankans, að teknu tilliti til eiginfjárauka í árslok 2025, úr 19,1% í 19,5%. Árlegt könnunar- og matsferli Fjármálaeftirlitsins tekur til kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja og felur meðal annars í sér mat á áhættu í starfsemi þeirra og ákvörðun um viðbótareiginfjárkröfu samkvæmt svokallaðri 2. stoð reglurammans.

Share this article