Innlent | mbl | 30.6.2026 | 23:20 Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Frá vinnslustöð Hvals hf. í Hvalfirði, sem ekki er talin uppfylla mengunarvarnarskilyrði sem á er kveðið um í starfsleyfi hennar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Segir Watson vera elítuaktívista „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Afmæli Gæslunnar frestað vegna Bandero » Fleiri tengdar fréttir Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Vesturland telur það óásættanlegt að ekki sé staðið með fullnægjandi hætti að mengunarvörnum við vinnslustöð Hvals ehf., sér í lagi í ljósi mögulegrar yfirborðsmengunar vegna hvalfitu í firðinum. Eftirlitið hefur því tekið starfshætti stöðvarinnar til skoðunar og segir það koma til greina að þvingunarúrræðum á borð við dagsektir eða afturköllun starfsleyfis verði beitt. Starfsleyfi fyrir vinnslustöð Hvals var gefið út árið 2024 til tveggja ára, en í því er til dæmis kveðið á um að á starfsleyfistímanum verði að bæta úr mengunarvörnum starfseminnar sem ekki hefur enn verið gert þó starfsleyfið renni út eftir tíu daga. Frétt af mbl.is Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Frétt af mbl.is Hvalur 9 á landleið með tvö dýr Gildran fangi fituna ekki nægilega vel Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri eftirlitsins, segir það hafa legið fyrir frá útgáfu leyfisins að taka þyrfti aðstöðu við mjölvinnslu hvals til skoðunar og að úrbóta væri þörf. „Við mjölvinnslu hvals eru beinin og aðrir hlutar hvalsins soðnir og mjöl gert úr þeim, og við þetta eru notaðir 54 rúmmetrar af soðvatni sem inniheldur ákveðið fitumagn úr hvalnum,“ segir hann í samtali við mbl.is. Soðvatnið verði því að fara í gegnum svokallaða fitugildru til þess að sía hvalfituna frá áður en það má renna til sjávar, en samkvæmt heimildum eftirlitsins er soðvatnið sem látið er renna í gegnum fitugildruna 80 gráðu heitt og fitan því, eins og gefur að skilja, í vökvaformi og erfitt að fanga hana með þeirri gildru sem nú er til staðar. Frétt af mbl.is „Þetta ætti alveg að ganga“ Höfðu tvö ár til að finna betri lausn Fitugildra vinnslustöðvarinnar var endurnýjuð árið 2024 að sögn Þorsteins, en í starfsleyfinu er kveðið á um að finna þurfi betri lausn innan starfsleyfistímans við förgun soðvatnsins eða bæta fitugildrurnar, og að lausnin yrði að vera samþykkt af starfsleyfisútgefanda, það er heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals ehf., mun hafa borist ítrekunarbréf vegna þessa þann 11. maí, en ekki brugðist við því að svo virðist sem ekki sé fullnægjandi mengunarvarnarbúnaður við vinnslustöðina. „Við teljum þetta auðvitað óásættanlegt, að ekki sé staðið með fullnægjandi hætti að mengunarvörnum þó það hafi gefist tvö ár til þess að huga að þessu,“ segir Þorsteinn og bætir því við að eftirlitið hafi bent á ýmsar lausnir fyrir soðvatnið. „Að veittum tilskyldum leyfum væri til dæmis hægt að nýta það til uppgræðslu, eða mögulega í dýrafóður, en þeir eru allavega ekki búnir að framkvæma lausn á þessu og við vitum ekki til þess að það hafi verið reynt.“ Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals ehf., mun hafa borist ítrekunarbréf vegna þessa þann 11. maí, en ekki brugðist við því. mbl.is/Eggert Jóhannesson Hvalfitan í rákum um fjörðinn Fyrir skemmstu hafi eftirlitinu borist tilkynning ásamt myndum og myndböndum sem sýni yfirborðsmengun í firðinum yfir tveggja daga skeið, sem mun hafa hafist rétt eftir að vinnsla á hval hófst. „Við vitum ekki alveg hvað þetta er, trúlega einhvers konar fita eða seyra, sem dreifir sér í rákum um fjörðinn og það er gríðarlegt magn af fugli í þessu,“ segir Þorsteinn. Hann segir ekki hægt að segja fyrir um neikvæð umhverfisáhrif þessarar mengunar. Ljóst sé að lífrænar afurðir af þessu tagi séu ekki eitraðar, en að meindýr á borð við máva sæki í fiturákirnar af áfergju. „En við erum að rannsaka þetta betur, við tókum sýni fyrr í dag úr firðinum og ráðgerum að taka sýni úr fitugildrunni til þess að meta hversu vel hún virkar í raun og veru.“ Þvingunaraðgerðir ef ekkert er aðhafst Eftirlitið sendi Kristjáni Loftssyni annað bréf í dag til þess að upplýsa hann um málið, en ef skilyrði starfsleyfisins verða ekki uppfyllt með fullnægjandi hætti innan tíu daga mun það koma til kasta heilbrigðisnefndar Vesturlands að taka ákvörðun um það hvort og þá hvers konar þvingunaraðgerðum verði beitt. Lögum samkvæmt kynnu slíkar þvingunaraðgerðir að fela í sér áminningar, beitingu dagsekta þar til aðstöðu til förgunar hefur verið komið í lag, lokun starfseminnar til bráðabirgða og svo afturköllun starfsleyfisins. Þorsteinn tekur það þó fram að að öðru leyti en við förgun afgangsfitu hafi Hvalur ehf. uppfyllt kröfur eftirlitsins af myndarskap. Tengdar fréttir Hvalveiðar Segir Watson vera elítuaktívista „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Afmæli Gæslunnar frestað vegna Bandero » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Hjörvar Hafliðason vakti mikla athygli á HM Fækkun beiðna áhyggjuefni Öfgavinstrisamtök vaxandi vandamál í Þýskalandi Börn niður í sjö ára að skoða klám Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ekkert svigrúm til að gera neitt gott“ 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Um 50 þúsund er enn saknað Mest lesið Í gær Í vikunni Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Nýjast á mbl.is » Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Hjörvar Hafliðason vakti mikla athygli á HM Fækkun beiðna áhyggjuefni Öfgavinstrisamtök vaxandi vandamál í Þýskalandi Börn niður í sjö ára að skoða klám Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fer fram á 16 ára dóm: Ásetningurinn kaldur og grimmur Tvö stærstu mál sögunnar: Skoða tengslin Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Tengja kyrkingartak við óútskýrðan heilsubrest Mest lesið Í gær Í vikunni Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“