Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.7.2026 | 21:00 Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals Talið var að hvalfita úr framleiðsluferlinu væri ekki síuð nægilega vel frá soðvatni áður en því væri veitt út í fjörðinn, en sú var ekki raunin. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Bandero á brott úr íslenskri efnahagslögsögu Bandero stímir út úr lögsögunni og til Írlands Bandero afþakkaði aðstoð Gæslunnar Bandero yfirgefur Ísland Paul Watson kaupir auglýsingar á strætóskýlum » Fleiri tengdar fréttir Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, segir þær upplýsingar sem eftirlitinu bárust um ófásættanlegar mengunarvarnir á vinnslustöð Hvals hf. í Hvalfirði ekki hafa verið alveg réttar. Talið var að hvalfita úr framleiðsluferlinu væri ekki síuð nægilega vel frá soðvatni áður en því væri veitt út í fjörðinn, sem kynni að vera ástæðan fyrir því að fituslikja sem sést hefur á firðinum og í fjöruborðinu, en sú var ekki raunin. Forsendur virðast því vera fyrir því að starfsleyfi vinnslustöðvarinnar verði endurnýjað til tveggja ára, en það hvílir þó á niðurstöðum greiningar heilbrigðiseftirlitsins á því hvað nákvæmlega leynist í þessu soðvatni. Frétt af mbl.is Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Ranglega upplýstir um virkni gildrunnar Þegar starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands fóru í eftirlit í starfsstöðina í lok júní upplýsti starfsmaður Hvals þá um að það væri að fara 80 gráðu heitt soðvatn í gegnum fitugildruna í hreinsistöðinni, sem hefði eins og gefur að skilja gert hana algjörlega óvirka. Soðvatnið verður til við gerð hvalamjöls þegar bein og aðrar leifar hvala eru soðnar saman, og nauðsynlegt er að skilja þá fitu sem einangrast í ferlinu frá vatninu áður en því er veitt út í fjörðinn til þess að fitan dagi ekki uppi sem fóður fyrir til dæmis vargfugla. Í kjölfar skoðunarinnar var skýringa frá Hval hf. óskað bréfleiðis, og nýtti Kristján Loftsson, forstjóri fyrirtækisins, sér þá andmælarétt sinn og sendi eftirlitinu línu á föstudaginn. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þá hafði heilbrigðiseftirlitið þegar farið aftur í eftirlitsskoðun og fengið upplýsingar um að hið 80 gráðu heita vatn væri ekki að fara í gegnum fitugildruna, heldur væri það kælt áður, og sannreyndu það í skoðun sinni. „Við fengum kannski ekki alveg réttar upplýsingar fyrst – við mældum gildruna sjálf í annarri heimsókninni og komumst að því að það var bara eðlilegt hitastig á gildrunni, og hún var að safna fitu,“ segir Þorsteinn í samtali við mbl.is. Engar ákvarðanir teknar í málinu strax Hitastig soðvatnsins hafi verið í kringum tuttugu gráður, sem ætti að vera nógu kalt til þess að fitan harðni að nýju að sögn Þorsteins. „Starfsmennirnir voru sjálfir að safna fitunni upp úr gildrunni, þannig að það sást að hún var að virka.“ Heilbrigðiseftirlitið framkvæmdi jafnframt sýnatöku á fitugildrunni til þess að kanna hreinsunina betur, en niðurstaða hennar má vænta í vikunni. „En þar sem þær upplýsingar liggja ekki fyrir er ekki búið að taka neinar ákvarðanir í málinu eða fella það niður.“ Ómögulegt að segja hvaðan fitan kemur Undanfarna daga hafa eftirlitinu borist myndir úr fjörunni í næsta nágrenni vinnslustöðvar Hvals sem virðast sýna tólgarkennda mengun úr hafinu. Hafverndarsamtök Pauls Watson, sem hyggjast koma í veg fyrir hvalveiðar Hvals hf. með öllum tiltækum ráðum, hafa birt þónokkur myndskeið á samfélagsmiðlum úr fjöruborðinu þar sem því er haldið fram að fitan sé hvalfita úr vinnslustöð fyrirtækisins. Þorsteinn segir það þó alls ekki öruggt að fullyrða það. „Það er í rauninni ómögulegt að segja hvaðan hún kemur, en þetta er náttúrulega bara í næsta nágrenni við Hval,“ segir Þorsteinn og bætir því við að eftirlitið hafi ekki framkvæmt greiningu á fitunni í fjöruborðinu. Eftir að koma í ljós hvort eftirlitið samþykki starfsleyfi Til þess að starfsleyfi Hvals verði endurnýjað verður samþykki starfsleyfisútgefandans, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, að liggja fyrir, en starfsleyfið rann út á föstudaginn sem leið. Þorsteinn segir það hins vegar eiga eftir að koma í ljós með niðurstöðum greiningar á sýnum úr fitugildrunni hvort það samþykki verði veitt. „Það liggur fyrir núna að Hvalur kælir vatnið áður en það fer í gegnum gildruna, svo hún ætti að vera að grípa fituna. En við vitum eftir sem áður ekki alveg hvað það er sem fer út úr gildrunni, og það er það sem við viljum vita nánar.“ Ef í ljós kemur að mengunarvörnum er ábótavant er heilbrigðiseftirlitnu heimilt að beita þvingunaraðgerðum gegn Hval ehf, en Þorsteinn treystir sér ekki til þess að segja til um það hvort til greina komi að beita slíkum aðgerðum fyrr en niðurstöður mælinga liggja fyrir. „Þá verðum við með tölur sem tala sínu máli,“ segir hann. Tengdar fréttir Hvalveiðar Bandero á brott úr íslenskri efnahagslögsögu Bandero stímir út úr lögsögunni og til Írlands Bandero afþakkaði aðstoð Gæslunnar Bandero yfirgefur Ísland Paul Watson kaupir auglýsingar á strætóskýlum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Endurkoma Breiðabliks á heimavelli Myndir: Liðin tíð lifnaði við á ljósmyndasýningu Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals Á förum frá Arsenal Enskir og danskir draugar í skipum Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Gæslumenn auðlindanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tvær hindranir í vegi orkuskipta Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Starmer gefur lítið fyrir kvabb um Falklandseyjar Sundlaugagarður í Laugardalnum Mest lesið Í gær Í vikunni Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Nýjast á mbl.is » Endurkoma Breiðabliks á heimavelli Myndir: Liðin tíð lifnaði við á ljósmyndasýningu Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals Á förum frá Arsenal Enskir og danskir draugar í skipum Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Gæslumenn auðlindanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Tvær hindranir í vegi orkuskipta Starmer gefur lítið fyrir kvabb um Falklandseyjar Dularfullir kalkþörungar fegra Mest lesið Í gær Í vikunni Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi

Share this article