Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir orð Bergþórs valda misskilningi

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 19.2.2026 | 17:26 Segir orð Bergþórs valda misskilningi Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda segir að misskilningur hafi farið á flug vegna orða Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins. Morgunblaðið/Kristófer Liljar/Eggert Landssamband smábátaeigenda segir það ekki rétt að niðurfelling hlutdeilda muni sjálfkrafa skapa bótaskyldu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér fyrir skemmstu. Tekið er fram að misskilninginn megi rekja til ræðu Bergþór Ólasonar, þingmanns Miðflokksins. Aðspurður segist Bergþór aftur á móti ekki telja að það sé skýrt í nýju frumvarpi að ekki muni skapast bótaskylda. Umsögn eigi ekki lengur við „Nú er kominn á flug sá misskilningur að Fiskistofa hafi úrskurðað að ekki sé hægt að fella niður grásleppukvóta án bóta,“ segir í tilkynningu LS. Vísað er í ræðu Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, sem hann hélt í ræðustól Alþingis miðvikudaginn 18. febrúar. Frétt af mbl.is Grásleppufrumvarp aftur á dagskrá Þar vitnaði Bergþór í svohljóðandi umsögn Fiskistofu: „Fiskistofa fær ekki séð að hægt sé að fella niður hlutdeild skipa og færa réttindi til að stunda grásleppuveiðar yfir á önnur skip án þess að bætur komi fyrir. Þótt skýrt komi fram í 3. málslið 1. greinar laga um stjórn fiskveiða, að úthlutun veiðiheimilda myndi ekki eignarrétt eða óafturkræfanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum, þá njóti veiðiheimildir vissrar verndar sem atvinnuréttindi. Að mati Fiskistofu verða þau réttindi ekki færð til annarra aðila bótalaust.“ Í tilkynningu LS segir að sú umsögn sem Bergþór vísar til eigi við um það frumvarp sem lagt var fram á síðasta löggjafarþingi. Sömu vankanta sé ekki að finna í núverandi frumvarpi. Kjartan Páll Sveinsson formaður LS segir að í kjölfar ræðu Bergþórs hafi staðreyndaleysan hins vegar farið á flug og nauðsynlegt sé að leiðrétta misskilninginn. „Það er búið að breyta þessu þannig að í nýja frumvarpinu var tekið tillit til fleiri þátta,“ útskýrir Kjartan og bendir í því samhengi á að í umsögn Fiskistofu við nýtt frumvarp er ekki minnst á mögulega bótaskyldu eins og gert var við fyrra frumvarp. „Það er af því að það á ekki lengur við,“ áréttar hann. „Öll þau skip sem eru með hlutdeild, þau fá leyfi. Réttindin verða ekki færð á önnur skip, þau verða áfram á sömu skipum.“ Afar deildar meiningar eru um hvernig stjórnun grásleppuveiða skuli háttað. mbl.is/Eggert Segir enn þá óljóst hvort komi til bóta Inntur eftir viðbrögðum við gagnrýni LS segist Bergþór ekki telja að það komi skýrt fram í nýju frumvarpi að ekki muni koma til bótaskyldu. „Það hefur ekki verið leitt fram svo fullnægjandi sé,“ segir Bergþór. „Það er nú partur af því sem við erum að óska eftir hvað úttekt á lagalegum grundvelli málsins varðar.“ Hann segist enn þá vera efins um að engin bótaskylda muni koma til. „Það kemur fram í svari atvinnuvegaráðuneytisins frá því í gær að veiðar verði stöðvaðar um leið og þetta frumvarp er samþykkt,“ segir Bergþór. „Það er mikil flækjustig og óvissa sem þetta frumvarp kallar fram verði það samþykkt.“ Aðspurður í hvaða samhengi hann hafi lesið upp umsögn Fiskistofu frá fyrra þingi bendir Bergþór á að hann hafi tekið fram á hvaða þingi umsögnin hafi komið fram. „Það hefur þó ekkert breyst þannig að Fiskistofa dragi þennan hluta umsagnar sinnar til baka. Hún fjallaði bara um aðra hluti í umsögn sinni núna,“ segir Bergþór að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ásökun um vanhæfi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Línuskip Vísis landa góðum afla Engin aukning í loðnukvóta Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Haag-ákvæði þarf samþykki Engin aukning í loðnukvóta Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Menningarmunur á viðhorfi til rannsakenda Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Línuskip Vísis landa góðum afla Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Engin aukning í loðnukvóta Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Jakobína mætt aftur 70 árum síðar Tvöföld veikindi hjá því opinbera Beint: Andrew handtekinn Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Ásökun um vanhæfi Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Loðnutorfurnar alveg í yfirborðinu Ráðuneytið svari spurningum um grásleppu Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Línuskip Vísis landa góðum afla Engin aukning í loðnukvóta Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Haag-ákvæði þarf samþykki Engin aukning í loðnukvóta Myndir: Aðstoðuðu skip að bryggju með hjálp dróna Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Menningarmunur á viðhorfi til rannsakenda Vilja auka virði sjávarafurða á Grænlandi Ná ýsunni nær eingöngu í björtu Línuskip Vísis landa góðum afla Stjórnvöld stígi dansinn við ESB Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Óvíst að reglugerð taki á vandanum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Samningar gufað upp og fyrirtæki skera niður Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Engin aukning í loðnukvóta Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Þröng á þingi á loðnumiðum Fleira áhugavert Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Pútín, konur og greiðar: Rússatengsl Epsteins Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Veita undanþágur vegna líkbrennslu Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »

Share this article