200 mílur | mbl | 10.7.2026 | 10:00 Myndband: Sigldu fyrir látinn skipstjóra Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Laugardaginn 4. júlí sigldu fjögur skip heiðurshring á Fáskrúðsfirði til að votta látnum skipstjóra virðingu sína, en það var sama dag og útför hans fór fram. Bergur Einarsson, Fáskrúðsfirðingur, sjómaður til margra ára og farsæll skipstjóri, lést 55 ára gamall í bifhjólaslysi austan við Vík í Mýrdal í lok júní. Útför hans fór fram á Fáskrúðsfirði 4. júlí. Bergur hóf skipstjórnarferil sinn 28 ára gamall á Hoffelli SU, uppsjávarskipi Loðnuvinnslunnar, en frá árinu 2019 var hann skipstjóri á Venusi NS, uppsjávarskipi Brims. Hann var aflasæll skipstjóri, virtur og vel liðinn. „Hann var rólegur og yfirvegaður og ótrúlega klár skipstjóri,“ segir Kristján Þorvarðarson þegar Morgunblaðið hefur samband, en hann er einnig skipstjóri á Venusi. Aðspurður hvað í því felist að vera klár skipstjóri á uppsjávarskipi útskýrir Kristján að þörf sé á því að kunna að lesa í aðstæður. „Þú ferð kannski frá hópnum sem er að veiða og finnur nýjan stað sem gefur fisk. Hann var lunkinn þar.“ Bergur þekkti miðin vel og þótti lunkinn við að leita uppi fiskinn. Ljósmynd/Sigurður Ólafur Sigurðsson Virðingarvert ævistarf Þótt Kristján og Bergur hafi staðið vaktina hvor á móti öðrum var samstarf þeirra töluvert. „Við vorum náttúrulega saman þegar við vorum á loðnu. Þá var ég stýrimaður og hann skipstjóri,“ útskýrir Kristján. Á öðrum vertíðum áttu þeir í góðum samskiptum og báru jafnan saman bækur sínar. „Ég var ekki með sömu reynslu og hann, þannig að það var mjög gott að geta hringt til hans og leitað ráða hjá honum þegar á þurfti að halda,“ bætir hann við. „Það er mikill söknuður að honum strax. Þetta er högg fyrir okkur áhöfnina, mikið högg.“ Kristján Þorvarðarson Af virðingu við ævistarf Bergs afréð Loðnuvinnslan að senda skip sín, Hoffell og Ljósafell, í siglingu á Fáskrúðsfirði daginn sem útförin var haldin. Brim gerði slíkt hið sama og sendi skip Bergs, Venus, frá Reykjavík, og þá ákvað útgerðin Eskja á Eskifirði einnig að senda skipið Aðalstein Jónsson til Fáskrúðsfjarðar. Venusi sigldi Kristján frá Reykjavík en í skut skipsins var íslenska fánanum flaggað í hálfa stöng. „Við sigldum bara fram og til baka og Hoffellið sigldi frá Færeyjum til Fáskrúðsfjarðar til að taka þátt í þessu,“ segir Kristján. „Það var lágmarksmannskapur sem sigldi austur, við vorum bara sex um borð, en svo var auðvitað öll áhöfnin í þessari útför.“ Skipin sigldu inn fjörðinn skömmu fyrir ellefu á laugardagsmorgun og sigldu hring við höfnina. „Loðnuvinnslan hafði frumkvæði að þessu og Brim ákvað að sjálfsögðu að taka þátt,“ útskýrir Kristján. Skipsflautur þeyttar „Þetta kemur einfaldlega til af því að áhafnir skipanna og fyrirtækin höfðu áhuga á því að sýna lífi hans þennan virðingarvott,“ segir Garðar Svavarsson framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar í samtali við Morgunblaðið. „Svo ákvað Aðalsteinn Jónsson að taka þátt í þessu,“ bætir hann við, en Þorsteinn Kristjánsson eigandi Eskju og sonur hans, Daði Þorsteinsson útgerðarstjóri, störfuðu sem skipstjórar á Aðalsteini á sömu miðum og Bergur í fjölmörg ár. „Það var auðsótt að fá þá til að senda Aðalstein og taka þátt í þessari stund,“ segir Garðar að endingu. Þegar skipin sigldu að þorpinu eitt af öðru flautuðu þau þrisvar sinnum. Lagt var að bryggjunni á Fáskrúðsfirði en þangað ók líkfylgdin að lokinni athöfn í kirkjunni og áður en haldið var áfram í kirkjugarðinn. Við höfnina voru skipsflauturnar þeyttar fyrir Berg í síðasta sinn. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Stefna að sölu vistfisks innan fimm ára Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Lagt af stað í makrílleiðangur Þrjú blá skip saman við landfestar Línuskipin moka inn keilunni Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Gildrur draga úr laxalús um 44% Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Stefna að sölu vistfisks innan fimm ára Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Lagt af stað í makrílleiðangur Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Línuskipin moka inn keilunni Þrjú blá skip saman við landfestar Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg „Grafalvarlegt mál“ Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Reyna aftur að eltast við hvalveiðibátana Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Ellefta langreyðurin veidd Þrjú blá skip saman við landfestar Fleira áhugavert Býður ullarteppi og hlutabréf upp í skuld Besta veðrið á Austurlandi Uppselt í flug austur í dag og hótel nær fullbókuð Meðallaunþeginn fer á mis við 15 milljónir Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 9.7.26 631,65 kr/kg Þorskur, slægður 9.7.26 708,87 kr/kg Ýsa, óslægð 9.7.26 419,07 kr/kg Ýsa, slægð 9.7.26 412,01 kr/kg Ufsi, óslægður 9.7.26 234,10 kr/kg Ufsi, slægður 9.7.26 273,96 kr/kg Djúpkarfi 2.7.26 228,00 kr/kg Gullkarfi 9.7.26 327,09 kr/kg Litli karfi 1.7.26 26,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 10.7.26 Norðurljós NS 40 Handfæri Þorskur 511 kg Samtals 511 kg 10.7.26 Álft ÍS 413 Sjóstöng Þorskur 207 kg Samtals 207 kg 10.7.26 Himbrimi ÍS 444 Sjóstöng Þorskur 294 kg Samtals 294 kg 9.7.26 Hafdís SH 309 Handfæri Ufsi 16 kg Samtals 16 kg 9.7.26 Sælaug MB 12 Handfæri Ufsi 56 kg Karfi 1 kg Samtals 57 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Stefna að sölu vistfisks innan fimm ára Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Lagt af stað í makrílleiðangur Þrjú blá skip saman við landfestar Línuskipin moka inn keilunni Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Gildrur draga úr laxalús um 44% Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Stefna að sölu vistfisks innan fimm ára Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Lagt af stað í makrílleiðangur Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Línuskipin moka inn keilunni Þrjú blá skip saman við landfestar Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg „Grafalvarlegt mál“ Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Andlát: Kristinn V. Jóhannsson Reyna aftur að eltast við hvalveiðibátana Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Ellefta langreyðurin veidd Þrjú blá skip saman við landfestar Fleira áhugavert Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Besta veðrið á Austurlandi Stefnir í mesta hita ársins um helgina Uppselt í flug austur í dag og hótel nær fullbókuð Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 9.7.26 631,65 kr/kg Þorskur, slægður 9.7.26 708,87 kr/kg Ýsa, óslægð 9.7.26 419,07 kr/kg Ýsa, slægð 9.7.26 412,01 kr/kg Ufsi, óslægður 9.7.26 234,10 kr/kg Ufsi, slægður 9.7.26 273,96 kr/kg Djúpkarfi 2.7.26 228,00 kr/kg Gullkarfi 9.7.26 327,09 kr/kg Litli karfi 1.7.26 26,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 10.7.26 Norðurljós NS 40 Handfæri Þorskur 511 kg Samtals 511 kg 10.7.26 Álft ÍS 413 Sjóstöng Þorskur 207 kg Samtals 207 kg 10.7.26 Himbrimi ÍS 444 Sjóstöng Þorskur 294 kg Samtals 294 kg 9.7.26 Hafdís SH 309 Handfæri Ufsi 16 kg Samtals 16 kg 9.7.26 Sælaug MB 12 Handfæri Ufsi 56 kg Karfi 1 kg Samtals 57 kg Skoða allar landanir »