- What: The Icelandic government is preparing to announce a new policy regarding homelessness.
- Impact: The policy aims to reduce homelessness in Iceland, drawing inspiration from successful strategies implemented in Finland.
Stefna í málefnum heimilislausra er hluti af óbirtum aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar. Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðimálaráðherra segir mikilvægt að fá samfélagið með í lið. Deildarstjóri í málefnum heimilislausra hjá borginni segir að kerfið hafi brugðist. „Þetta verður hluti af næsta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar, að það verði sett stefna í málefnum heimilislausra í fyrsta skipti á Íslandi,“ segir Ragnar Þór en hann hélt erindi á fundi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í morgun þar sem heimilisleysi á Íslandi var til umræðu. Ekki síst félagslegur stuðningur Horft verður til Finnlands, þar sem tekist hefur að draga úr fjölda heimilislausra um 80%. Ragnar Þór segir að þetta sé talsvert víðtækara en að koma þaki yfir fólk. „Þetta er líka mikill félagslegur stuðningur.“ Hvert er markmiðið? „Við munum hafa háleit markmið, ég ætla ekki að nefna neinar tölur í þeim efnum akkúrat hér. En það sem mestu máli skiptir er að stjórnin setji sér skýra stefnu varðandi heimilisleysi. Og þurfum auðvitað að fá samfélagið með okkur líka. Að reyna að koma með úrræði fyrir jaðarsetta hópa er ekki samfélagslega einfalt mál. Þetta þarf að vera stórt samfélagslegt verkefni þar sem við þurfum öll að hafa skilning á því að þessa hópa þarf að styðja við sérstaklega.“ Ætlar ríkisstjórnin að byggja húsnæði fyrir heimilislaust fólk? „Eigum við ekki að segja það. Ef ríkið kemur að þessu með fjármagn... þá held ég að það sé alveg óhætt að segja að ríkið ætli í samstarf við sveitarfélögin að lyfta grettistaki í þessum málaflokki. Þetta er hluti af aðgerðapakka stjórnvalda í húsnæðismálum, hluti af aðgerðapakka sem hefur reyndar enn ekki verið kynntur.“ Óvíst um fjöldann Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri í málum heimilislausra hjá Reykjavíkurborg, segir engar tölur um hversu margir séu heimilislausir hér á landi, þar sem borgin sé eina sveitarfélag landsins sem hafi sett sér stefnu í málaflokknum, en á fjórða hundrað hafi nýtt sér neyðarskýli í borginni í fyrra og nú á að bæta við húsnæði. „Sumir eru jafnvel að dvelja í ótryggum aðstæðum annars staðar og við erum að reyna að fanga þeirra stöðu með öflugu vettvangsstarfi hjá Reykjavíkurborg,“ segir Soffía. Sem dæmi um ótryggar aðstæður nefnir Soffía dvöl á heimilum fólks sem beitir ofbeldi eða nauðung. Þá dvelji margir í bílastæðahúsum og ýmsum almannarýmum. Og talsverð uppbygging er á döfinni. „Við erum með rúmlega 100 pláss í húsnæðisuppbyggingaráætlun hjá okkur,“ segir Soffía. Þið ætlið að bæta við 100, en hvað eruð þið með mörg núna? „Núna erum við með 77 íbúa hjá okkur.“ Hefur kerfið brugðist? „Já, ég held að það sé eitthvað sem við þurfum að samþykkja og horfast í augu við,“ segir Soffía.