Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heimilis­læknar lýsa yfir „sárum von­brigðum“ með fjár­laga­frum­varpið

Read Full Article →

Stjórn Félags ís­lenskra heimilis­lækna, FÍH, lýsir yfir „sárum von­brigðum“ með fjár­laga­frum­varp ríkis­stjórnarinnar fyrir árið 2027. Í yfir­lýsingu félagsins segir að sú fjár­mögnun sem kynnt er til heilsugæslunnar sé hvergi nærri nægi­leg til að vinna á upp­söfnuðum fjár­hags­vanda. „Miðað við fólks­fjölgun og launaþróun blasir það við að færri krónur eru til um­ráða fyrir hvern ein­stak­ling sem aftur veldur skertri þjónustu,“ segir í yfir­lýsingunni. Félagið segir að verði frum­varpið að veru­leika muni það gera núverandi stöðu, sem þegar sé mjög erfið, enn verri. Nær öll heilsugæslu- og heil­brigðisþjónusta eigi að þeirra mati í erfið­leikum með dag­legan rekstur. Þá bendir stjórn FÍH á að sérnám heimilis­lækna sé ekki fjár­magnað og að nú þegar sé farið að bera á því að Land­spítali hafi sagt upp stöðum sérnámslækna í heimilis­lækningum vegna fjár­skorts. Félagið varar einnig við því að van­fjár­mögnun heilsugæslunnar geti leitt til þess að fleiri Ís­lendingar neyðist til að greiða sjálfir fyrir þjónustu heimilis­lækna. Stjórn FÍH minnir ríkis­stjórnina jafn­framt á stefnu­yfir­lýsingu hennar þar sem segir að allir lands­menn eigi að hafa „fastan heimilis­lækni, eins og það er orðað“. „Með hlið­sjón af fjár­laga­frum­varpi ársins 2027 er aug­ljóst að ríkis­stjórnin sýnir lítinn sem engan vilja til að ná þessu mark­miði fyrir fólkið í landinu,“ segir í yfir­lýsingunni. Gunnar Þór Geirs­son, for­maður FÍH, undir­ritar yfir­lýsinguna fyrir hönd stjórnar félagsins. Sjá einnig Víkja frá lof­orðinu um fastan heimilis­lækni

Share this article