Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skipin skiluðu sjö milljörðum í ríkissjóð

Read Full Article →

Árið 2025 greiddu útgerðir skemmtiferðaskipa um 6,9 milljarða króna í innviðagjald, gistináttagjald, vitagjald og hafnargjöld. Þá er ótalið óbeinir skattar sem runnu í ríkissjóð af starfsemi tengdum skemmtiferðaskipum, farþegum og áhöfnum þeirra. Þetta kemur fram í tölum sem Cruise Iceland hefur tekið saman en umrædd samtök gæta hagsmuna íslenskra hafna, skipaumboðsmanna, þjónustuaðila og ferðaþjónustufyrirtækja. Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, segir tölurnar eina sönnun til viðbótar um að umræða þess efnis að skemmtiferðaskipaiðnaðurinn skili engum verðmætum í þjóðarbúið sé á villigötum. „Það eru margir sem átta sig engan veginn á því hvað þessi geiri, sem skapar lítið álag á innviði landsins, er að skila miklu í ríkissjóð í formi skatta og gjalda,“ segir hann en leggur einnig áherslu á að mikil vitundavakning hafi þó átt sér stað á undanförnum árum um mikilvægi skemmtiferðaskipaiðnaðarins. „Það hefur gengið ágætlega að leiðrétta hinar ýmsu ranghugmyndir tengdar geiranum. Þrátt fyrir það er mikið verk óunnið. Það er því undir okkur og öðrum í geiranum komið að upplýsa og halda til haga staðreyndum. Það að þessi árstíðabundni geiri skili tæplega 7 milljörðum í ríkiskassann í fyrra, og meira til í formi óbeinna skatta, verður bara að teljast nokkuð gott.“ Skemmtiferðaskipaiðnaðurinn skilaði að sögn Sigurðar alls um 40 milljörðum inn í íslenskt hagkerfi árið 2023. Ætla megi að sú tala hafi verið nær 50 til 60 milljörðum árin 2024 og 2025. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article