Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Goog­le greiðir 185 milljarða í skaða­bætur

Read Full Article →

Google hefur verið gert að greiða sænska fjártæknifyrirtækinu Klarna 14,3 milljarða sænskra króna, eða um 185 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur vegna tapaðra tekna PriceRunner, dótturfélags þess. PriceRunner er verðsamanburðarsíða þar sem notendur geta leitað að vörum, borið saman verð milli verslana og fundið hagstæðasta kostinn. Sænskur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að leitarvél Google hefði veitt eigin verðsamanburðarþjónustu forskot. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Niðurstaða úrskurðarins er súrsæt þar sem Klarna hafði krafist mun hærri fjárhæðar, nærri 8 milljarða dala, að sögn dómstólsins. „PriceRunner er talið hafa orðið fyrir tjóni vegna þess að Google hafi með ólögmætum hætti hyglað eigin verðsamanburðarþjónustu um árabil,“ er sagt í yfirlýsingu Einkaleyfa- og markaðsdómstólsins í Stokkhólmi. Málið tekur á framferði Google á mörkuðum PriceRunner í Bretlandi, Svíþjóð og Danmörku á árunum 2008 til 2023. Klarna býður einkum upp á skammtímalán án vaxta til neytenda. Félagið keypti PriceRunner árið 2022 til að byggja upp verslunarapp og auka umferð til söluaðila. „Þessi niðurstaða styður heilbrigðari og samkeppnishæfari markað fyrir það hvernig fólk ber saman vörur og þjónustu, og það er gott fyrir alla sem versla,“ segir í yfirlýsingu Klarna.

Share this article