Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Yfir 138 þúsundir milljarða í gervigreind

Read Full Article →

Google, Amazon, Microsoft og Meta hafa frá árinu 2023 varið samanlagt yfir 1,1 billjónum dala, jafnvirði um 138 þúsund milljörðum króna, í uppbyggingu innviða fyrir gervigreind, eftir því sem fram kemur í umfjöllun Financial Times. Þótt fjárfestingarnar séu farnar að skila auknum tekjum, einkum í skýjaþjónustu, gera fjárfestar nú sífellt ríkari kröfu um að útgjöldin skili sér í bættri afkomu. Fram kemur í uppgjörum fyrirtækjanna að þau hyggist verja samtals um 745 milljörðum dala til fjárfestinga á þessu ári, að mestu í gagnaver, sérhæfða örgjörva og raforkuinnviði. Tekjur af skýjaþjónustu jukust hjá Google, Amazon og Microsoft á síðasta ársfjórðungi, sem endurspeglar aukna eftirspurn fyrirtækja eftir reiknigetu vegna gervigreindar. Meta, sem rekur ekki skýjaþjónustu, sagði gervigreind hafa stuðlað að auknum auglýsingatekjum. Samhliða hafa fyrirtækin aukið langtímaskuldbindingar sínar verulega. Google, Microsoft og Meta tóku á síðasta ársfjórðungi á sig nýjar skuldbindingar tengdar gervigreind upp á nær 900 milljarða dala, meðal annars vegna gagnavera, netinnviða og orkukaupa. Amazon hefur ekki birt sambærilega sundurliðun. Mikill fjárfestingahraði hefur hins vegar dregið úr frjálsu sjóðstreymi. Samanlagt frjálst sjóðstreymi fyrirtækjanna féll niður í það lægsta í áratug og aðeins Microsoft og Meta skiluðu meira handbæru fé en þau vörðu til fjárfestinga. Greinendur telja að næstu misseri muni ráðast af því hvort auknar tekjur af gervigreind haldi áfram að vaxa nógu hratt til að réttlæta þær gríðarlegu fjárfestingar sem þegar hefur verið ráðist í.

Share this article