Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gríðarleg fjölgun í greiningum á þreytuheilkenni eftir veirusýkingu

Read Full Article →

Tæplega 800 manns hafa greinst með þreytuheilkenni eftir veirusýkingu hér á landi frá árinu 2020. Á sama tímabili hafa ríflega þrjú þúsund greinst með eftirstöðvar Covid. Mikil aukning hefur orðið í greiningum á þreytuheilkenni eftir veirusýkingu, en alls hafa 763 einstaklingar greinst á árunum 2020-2025 samanborið við aðeins 241 einstakling á fimmtán ára tímabili áður. Greiningar hafa því rúmlega þrefaldast á síðustu sex árum. Þetta kemur fram í svari Ölmu Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Íslensk erfðagreining hefur á undanförnum árum unnið að rannsóknum á langvinnum afleiðingum Covid. Akureyrarklíníkin, sem stofnuð var árið 2024, rannsakar jafnframt ME-sjúkdóminn og langvinnar afleiðingar COVID-19. ME-sjúkdómurinn er taugaónæmissjúkdómur sem einkennist meðal annars af mikilli þreytu og örmögnun. Talið er að í um 70–80% tilfella komi sjúkdómseinkenni fram í kjölfar veirusýkingar. Frá árinu 2020 hafa 3.228 einstaklingar fengið sjúkdómsgreininguna eftirstöðvar Covid. Stærstur hluti þeirra sem greinst hafa með ME frá árinu 2020 eru konur eða 73%. Magnús K Hannesson

Share this article