Borgarstjóri Kyiv hefur lýst yfir sorgardegi á morgun eftir það sem hann segir umfangsmestu árásir Rússlandshers á höfuðborgina nokkru sinni. Minnst þrettán féllu í árásunum og 86 særðust í flugskeyta- og drónaárásum á borgina í gærkvöldi og í nótt. Vitali Klitschko, borgarstjóri Kyiv, greinir frá því á Telegram að fánar á vegum borgarinnar verði dregnir í hálfa stöng á morgun til að minnast hinna föllnu, og að allt skemmtanahald verði bannað. Hann hvetur ríkisstofnanir og einkaaðila til að flagga í hálfa stöng. Árásirnar beindust meðal annars að fjölbýlishúsum, hóteli og heilbrigðisstofnun. Níu hæða blokk hrundi að hluta í árásunum. Víða um borgina má sjá ummerki eftir árásir næturinnar og björgunar- og leitaraðgerðir standa enn yfir. Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti var í Dublin á Írlandi í gær og flýtti för sinni til heimalandsins þegar honum bárust upplýsingar um að árásir Rússa væru yfirvofandi. Á blaðamannafundi sagði hann Rússa hafa undirbúið miklar árásir í nokkurn tíma. Úkraínumenn hafa einnig aukið langdrægar drónaárásir á Rússland undanfarið, sem beinast að orkuinnviðum og hernaðarmannvirkjum. Bandarísk hugveita áætlar að um 1,4 milljónir rússneskra hermanna og allt að 625.000 úkraínskir hermenn hafi fallið, særst eða er saknað eftir að innrás Rússa hófst í Úkraínu fyrir rúmum fjórum árum.
This article describes a kinetic military attack, not a software vulnerability; therefore, the requested technical details (CVSS score, affected/fixed versions, and workarounds) are not applicable. The threat involves large-scale Russian missile and drone strikes targeting civilian infrastructure in Kyiv, including residential buildings, a hotel, and healthcare facilities, resulting in significant casualties. The report also notes reciprocal Ukrainian long-range drone attacks on Russian energy and military infrastructure.