Borgarstjóri Kyiv hefur lýst yfir sorgardegi á morgun eftir það sem hann segir umfangsmestu árásir Rússlandshers á höfuðborgina nokkru sinni. Minnst 13 féllu í árásunum og 86 særðust í flugskeyta- og drónaárásum í gærkvöldi og í nótt. Vitali Klitschko, borgarstjóri Kyiv, greinir frá því á Telegram að fánar á vegum borgarinnar verði dregnir í hálfa stöng á morgun til að minnast hinna föllnu, og að allt skemmtanahald verði bannað. Hann hvetur ríkisstofnanir og einkaaðila til að flagga í hálfa stöng. Árásirnar beindust meðal annars að fjölbýlishúsum, hóteli og heilbrigðisstofnun. Níu hæða blokk hrundi að hluta. Víða um borgina má sjá ummerki eftir árásir næturinnar og björgunar- og leitaraðgerðir standa enn yfir. Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, var í Dublin á Írlandi í gær og flýtti för sinni til heimalandsins þegar honum bárust upplýsingar um að árásir Rússa væru yfirvofandi. Á blaðamannafundi sagði hann Rússa hafa undirbúið miklar árásir í nokkurn tíma. Úkraínumenn hafa einnig aukið langdrægar drónaárásir á Rússland undanfarið, sem beinast að orkuinnviðum og hernaðarmannvirkjum. Bandarísk hugveita áætlar að um 1,4 milljónir rússneskra hermanna og allt að 625.000 úkraínskir hermenn hafi fallið, særst eða sé saknað eftir að innrás Rússa hófst í Úkraínu fyrir rúmum fjórum árum.
This article describes a kinetic military threat, not a software vulnerability, detailing a major Russian missile and drone attack on Kyiv that resulted in significant civilian casualties and infrastructure damage. The attack vectors included cruise missiles and drones targeting residential buildings, a hotel, and a healthcare facility. The report also notes reciprocal Ukrainian long-range drone strikes on Russian energy and military infrastructure, alongside staggering casualty estimates from the broader conflict.