Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Sex börn særðust í árás Rússa á Zaporizhzhia

This article describes kinetic military attacks, not a software vulnerability, and therefore does not contain the technical details required for a standard security summary, such as an attack vector, CVSS score, or affected software versions.
Read Full Article →

25 hið minnsta særðust í loftárás Rússa á borgina Zaporizhzhia í Úkraínu í gærkvöld. Sex börn særðust í árásinni. Nokkur heimili og barnaskóli urðu fyrir skemmdum í árásinni. Þá varð vatnsveitukerfi kjarnorkuvers borgarinnar einnig fyrir árásinni. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin segir kælikerfi kjarnakljúfa orkuversins enn vera öruggt. Úkraínuher beinir árásum að vöruhúsum netverslunarrisa Úkraínuher gerði drónaárás á vörugeymslu nærri Sankti Pétursborg í nótt. Eldur kviknaði í húsinu og fréttamenn AFP segja reyk hafa lagt yfir borgina. Staðarmiðlar segja vöruhúsið í eigu rússneska netverslunarrisans Wildberries. Úkraínuher hefur gert fjölda árása á vöruhús fyrirtækisins á síðustu dögum, þar með talið í grennd Moskvu. Fjöldi Rússa sem býr á afskekktum stöðum, fjarri verslunum, reiðir sig á Wildberries. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu hefur sakað fyrirtækið um að versla með margar tegundir íhluta fyrir hergögn.

Share this article