Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bara bjart framundan segir Birgir á Vestmannaey

Read Full Article →

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE er kominn í þriggja vikna frí. Dyttað verður að skipinu í fríinu og áhöfnin mun njóta góðra daga. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem spjallað er við Birgi Þór Sverrisson, skipstjóra Vetsmannaeyjar. Blandaður afli í öllum túrum „Við lönduðum fullfermi í Vestmannaeyjum 23. júní og aftur í Þorlákshöfn þann 27. júní. Síðan var landað 65 tonnum í Eyjum í gær að afloknum stuttum túr. Aflinn í þessum veiðiferðum hefur verið blandaður; þorskur, ýsa, ufsi, koli og fleira. Í öllum þessum túrum höfum við verið að veiðum á Pétursey, Vík og Ingólfshöfða með viðkomu á Broadway í upphafi síðasta túrs,“ er haft eftir Birgi Þór. Óhemju mikið af sandsíli við Ingólfshöfða „Þetta hefur gengið vel hjá okkur en það er alls ekki sama fiskmagn á ferðinni nú og á sama tíma í fyrra og veður hefur verið frekar haustlegt stundum. Ég hef trú á því að fiskmagnið aukist fljótlega en það er háð því æti sem er til staðar. Nú í síðasta túr var óhemju mikið af sandsíli við Ingólfshöfða og ég hef í reyndinni aldrei séð svona mikið af síli,“ heldur Birgir Þór áfram. Þá segir skipstjórinn að það sé engin spurning að þegar sílið sé komið fylgi fiskurinn í kjölfarið. Mæta á kátir og hressir að fríi loknu „Svo kemur síldin í framhaldinu og það hefur auðvitað mikil áhrif líka. Það er semsagt bara bjart framundan hvað veiði varðar. Nú erum við komnir í þriggja vikna stopp og auðvitað munu menn njóta þess í botn og mæta á ný kátir og hressir að fríi loknu,” segir Birgir Þór Sverrisson á vef Síldarvinnslunnar .

Share this article