- What: Humpback whale population decline due to increased competition for food
- Impact: Humpback whales are not in danger of extinction
200 mílur | Morgunblaðið | 2.7.2026 | 13:45 Langreyðar ekki í útrýmingarhættu Þungunartíðni langreyða hefur lækkað vegna aukins þéttleika hvala við Ísland, líklega vegna aukinnar samkeppni um fæðu. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar Bandero áfram vestan við landið Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða „Á að standa með starfsfólki Hvals“ Gert að tíunda hval vertíðarinnar Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör » Fleiri tengdar fréttir Mikið hefur verið rætt um langreyðar undanfarið, en það er sú hvalategund sem Hvalur hf. veiðir í augnablikinu. Samtök aðgerðasinnans Pauls Watsons sigldu nýverið inn í íslenska lögsögu í því skyni að leita hvalveiðiskipin uppi og stöðva veiðarnar. Í kynningarefni samtakanna er því ítrekað haldið fram að Íslendingar séu að veiða hvalategund sem sé í útrýmingarhættu og sé það ein af meginástæðum þess að veiðarnar verði að stöðva. Það samræmist hins vegar ekki mati Hafrannsóknastofnunar, sem gefur út kvótaráðgjöf fyrir hvalveiðar. „Það er ekki rétt að þessi stofn sé í útrýmingarhættu. Við getum bara vísað í skýrslur bæði frá NAMMCO [Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið] og gögn frá Alþjóðahafrannsóknaráðinu,“ segir Guðmundur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Á heimasíðu samtaka Pauls Watsons kemur oft fram að langreyðarnar sem Íslendingar veiða séu í útrýmingarhættu. Skjáskot/The Captain Paul Watson Foundation Hann útskýrir að við Ísland sé ráðgjöfin þar að auki fremur nákvæm en henni er skipt á milli tveggja svæða. Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar kemur fram að á veiðisvæðinu á milli Austur-Grænlands og Vestur-Íslands sé leyfilegt að veiða 116 langreyðar og á svæðinu á milli Austur-Íslands og Færeyja megi veiða 34 dýr. Þá væri enginn kvóti Christophe Pampoulie rannsóknarstjóri Hafrannsóknastofnunar tekur í sama streng og Óskar. Aðspurður segir hann að stofninum við Ísland gangi vel. „Kvótarnir byggjast á raunverulegum talningum,“ segir hann. „Ef það væru ekki nógu margir hvalir til að veiða, þá fengist enginn kvóti.“ Christophe Pampoulie rannsóknastjóri Hafrannsóknastofnunar. Pampoulie útskýrir að það sé raunar töluverður munur á stöðu langreyðarstofnsins á suðurhveli og norðurhveli. „Ef þú lítur á stofninn í heild sinni á allri jörðinni er hægt að segja að langreyðar séu í hættu,“ segir Pampoulie. „En þær eru flokkaðar eftir nokkrum hafsvæðum og ástæða þess að þær eru í útrýmingarhættu á jörðinni er suðurhvelið.“ Hann segir jafnframt að í Norður-Atlantshafi, þar sem stofninn er mun stærri en annars staðar, séu langreyðar sagðar í viðkvæmri stöðu. Tegundin hafi verið flokkuð sem slík í marga áratugi og ólíklegt megi teljast að það breytist í bráð. Afar erfitt sé að fá flokkun breytt nema stofninn nái sömu stærð og hann var í þegar skráningin var framkvæmd. Stofninn hefur dafnað Pampoulie bætir því við að langreyðarstofninn í Norður-Atlantshafi hafi stækkað umtalsvert síðan hvalveiðibanni Alþjóðahvalveiðiráðsins var komið á árið 1986. Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar kemur þó fram að þungunartíðni tegundarinnar hafi lækkað og sé það rakið til aukins þéttleika hvala við landið. Líklega sé það vegna aukinnar samkeppni um fæðu. Gert að langreyði í Hvalfirði 2022. Morgunblaðið/Eggert „Þegar við stunduðum hvalveiðar áður fyrr höfðum við enga veiðistjórnun, það er að segja frá seinni hluta 19. aldar og fram til 1986. Það var engin stjórnun, það var engin talning. Fólk veiddi bara hvali til að fá olíu og slíkt,“ útskýrir Pampoulie. „Núna er þetta svolítið öðruvísi. Við teljum þá reglulega, við vitum stærð stofnanna og kvótarnir sem við gefum út byggjast á þeirri talningu.“ Ekki eru allir á sama máli um réttmæti hvalveiða. Sumir ræða mikilvægi hvala fyrir vistkerfi hafsins eða setja sig upp á móti veiðiaðferðunum. Hins vegar er ekki hægt að halda því fram að Hafrannsóknastofnun ráðleggi veiðar á tegund sem er í útrýmingarhættu. Frétt af mbl.is „Hvalveiðarnar ómannúðlegar og tilgangslausar“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Hvalveiðar Bandero áfram vestan við landið Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða „Á að standa með starfsfólki Hvals“ Gert að tíunda hval vertíðarinnar Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Gildrur draga úr laxalús um 44% Bandero áfram vestan við landið Ómetanlegir gripir til sýnis Bragi nýr sölustjóri Sæplasts og iTUB Besta strandveiðivertíð síðan 2009 „Á að standa með starfsfólki Hvals“ Mikilvægt gildi fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar Segir Watson vera elítuaktívista Reimt í kringum sjórekin lík útlendinga „Á að standa með starfsfólki Hvals“ Gert að tíunda hval vertíðarinnar Mikilvægt gildi fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar Segir Watson vera elítuaktívista Eina skipið sem sá þrjú þorskastríð Ómetanlegir gripir til sýnis „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Skilyrði að hafa varðskip úti fyrir Vestfjörðum Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Moby hnýtir í Kristján Loftsson Áhöfn Bandero gaf upp staðsetningu Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Fleira áhugavert Samræma viðmið til að takast á við skólaforðun „Ekki vekja athygli á þér, ekki monta þig“ Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Skúraveður með hagléljum og eldingu Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 2.7.26 673,99 kr/kg Þorskur, slægður 2.7.26 709,17 kr/kg Ýsa, óslægð 2.7.26 692,37 kr/kg Ýsa, slægð 2.7.26 645,07 kr/kg Ufsi, óslægður 2.7.26 240,24 kr/kg Ufsi, slægður 1.7.26 458,55 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 1.7.26 325,18 kr/kg Litli karfi 1.7.26 26,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 2.7.26 Nonni Matt ÞH 302 Handfæri Þorskur 767 kg Samtals 767 kg 2.7.26 Natalia NS 90 Handfæri Þorskur 796 kg Samtals 796 kg 2.7.26 Fálki ÞH 35 Handfæri Þorskur 756 kg Samtals 756 kg 2.7.26 Guðborg NS 336 Handfæri Þorskur 801 kg Samtals 801 kg 2.7.26 Geisli SH 15 Handfæri Ufsi 18 kg Samtals 18 kg 2.7.26 Geiri HU 69 Handfæri Ufsi 14 kg Samtals 14 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Gildrur draga úr laxalús um 44% Bandero áfram vestan við landið Ómetanlegir gripir til sýnis Bragi nýr sölustjóri Sæplasts og iTUB Besta strandveiðivertíð síðan 2009 „Á að standa með starfsfólki Hvals“ Mikilvægt gildi fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar Segir Watson vera elítuaktívista Reimt í kringum sjórekin lík útlendinga „Á að standa með starfsfólki Hvals“ Gert að tíunda hval vertíðarinnar Mikilvægt gildi fyrir sjálfsmynd þjóðarinnar Segir Watson vera elítuaktívista Eina skipið sem sá þrjú þorskastríð Ómetanlegir gripir til sýnis „Mínir hæfustu og herskáustu menn“ Skilyrði að hafa varðskip úti fyrir Vestfjörðum Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Watson skipað að kveikja á staðsetningarbúnaði Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Skip Watsons komið inn fyrir 200 mílurnar Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ Moby hnýtir í Kristján Loftsson Áhöfn Bandero gaf upp staðsetningu Samgöngurnar við Eyjar „hryllingur“ Fleira áhugavert Greinilega mikið ósamræmi Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Hvers vegna eru vextir svona háir? Efna til ESB-rökræðna í ágúst: Eftirspurnin mikil Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 2.7.26 673,99 kr/kg Þorskur, slægður 2.7.26 709,17 kr/kg Ýsa, óslægð 2.7.26 692,37 kr/kg Ýsa, slægð 2.7.26 645,07 kr/kg Ufsi, óslægður 2.7.26 240,24 kr/kg Ufsi, slægður 1.7.26 458,55 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 1.7.26 325,18 kr/kg Litli karfi 1.7.26 26,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 2.7.26 Nonni Matt ÞH 302 Handfæri Þorskur 767 kg Samtals 767 kg 2.7.26 Natalia NS 90 Handfæri Þorskur 796 kg Samtals 796 kg 2.7.26 Fálki ÞH 35 Handfæri Þorskur 756 kg Samtals 756 kg 2.7.26 Guðborg NS 336 Handfæri Þorskur 801 kg Samtals 801 kg 2.7.26 Geisli SH 15 Handfæri Ufsi 18 kg Samtals 18 kg 2.7.26 Geiri HU 69 Handfæri Ufsi 14 kg Samtals 14 kg Skoða allar landanir »