Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sakborningar í Straumsvíkurmáli í gæsluvarðhaldi til 8. júlí

Read Full Article →

Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim níu sem hafa verið handteknir í tengslum við umfangsmikið kókaínsmygl til Straumsvíkurhafnar gildir til 8. júlí. Að minnsta kosti fimm þeirra hafa kært úrskurðinn. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 106 kílóum af kókaíni var smyglað með skipinu Koznitza sem kom frá Brasilíu í síðustu viku. Málið er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Meðal þeirra sem voru handteknir eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti þrír Íslendingar. Ævar Pálmi segir ekki enn liggja fyrir hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald. RÚV / Ragnar Visage

Share this article