Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sakborningar í Straumsvíkurmáli í fjögurra vikna gæsluvarðhald til viðbótar

Read Full Article →

Níumenningarnir sem handteknir voru í tengslum við umfangsmikið smygl í svokölluðu Straumsvíkurmáli hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í fjórar vikur til viðbótar. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar. Fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður rann út í dag. Málið er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi en 106 kílóum af kókaíni var smyglað með skipinu Koznitza sem kom frá Brasilíu í júní. Meðal þeirra sem voru handteknir eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti þrír Íslendingar. Tveir þeirra eru Lúther Ólason og Lárus Freyr Einarsson. Gæsluvarðhald yfir sakborningum í stórfelldu kókaínsmyglmáli fyrir tveimur vikum hefur verið framlengt um fjórar vikur. Einn þeirra kom fyrir dómara í dag.

Share this article