Wolt á Íslandi tilkynnti nýverið samstarf við máltæknifyrirtækið Bara tala um að bjóða sendlum fyrirtækisins upp á íslenskunámskeið. Allir sendlar Wolt geta nú skráð sig og fengið aðgang að íslenskukennslu Bara tala án endurgjalds. Jóhann Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, segir í samtali við Viðskiptablaðið að verkefnið sé liður í að styrkja stöðu fyrirtækisins hér á landi. „Það er náttúrulega bara staðreynd að fjórir af hverjum fimm sendlum Wolt eru af erlendu bergi brotnir og tala ekki íslensku sem móðurmál. Fyrir marga er sendlastarfið líka fyrsta vinna þeirra á Íslandi og við teljum að þetta muni hjálpa þeim ekki aðeins í starfi heldur einnig við að aðlagast íslenskum vinnumarkaði.“ Námskeiðin verða jafnframt aðgengileg á 25 tungumálum svo sendlar geti fylgt náminu á meðan þeir læra íslensku. Sjá einnig Auka aðgengi að íslenskunámi á Landspítalanum „Íslenskunámskeiðin og orðaforðinn eru líka sérsniðin að sendlastarfinu til að styðja sendlana í starfi. Við lögðum mikið á okkur við að hanna þetta svo að sendlarnir gætu sinnt störfum sínum á íslensku.“ Þátttaka er valkvæð en Jóhann leggur áherslu á að Wolt vilji leggja sitt af mörkum til að styðja þá sem vilja læra málið. Hann bætir við að Wolt sé að skoða það að hefja sambærilegt verkefni í Noregi í kjölfar innleiðingarinnar hér á landi. Fyrstu hraðsendingar lyfja Wolt hefur einnig hafið samstarf við Urðarapótek um heimsendingu lausasölulyfja og annarra apóteksvara. Jóhann segir að um sé að ræða fyrstu þjónustu sinnar tegundar á Íslandi. Sjá einnig Gangstéttarvélmenni senda matinn heim „Apótek eins og Lyfja hafa um nokkurt skeið boðið upp á heimsendingar í gegnum eigin smáforrit. Þetta er hins vegar fyrsti hraðsendingarmátinn fyrir lyf á Íslandi. Viðskiptavinir á höfuðborgarsvæðinu geta nú pantað um 300 vörur í Wolt-appinu og fengið þær sendar frá Urðarapóteki í Grafarholti á um 30 mínútum. Á næstu vikum bætast við um 600 heilsu- og snyrtivörur. Wolt segir að samstarfið við Urðarapótek endurspegli vaxandi eftirspurn eftir hraðri og þægilegri afhendingu nauðsynjavara, ekki síst fyrir þá sem komast ekki eða kjósa að fara ekki sjálfir í apótek. „Þessi þjónusta er til dæmis vel þekkt í Finnlandi en þar eru stórar apótekakeðjur mjög virkar á Wolt. Það hefur verið lengi í bígerð hjá okkur að bjóða upp á þetta hér á landi og við erum mjög spennt fyrir þessu.“