Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Wolt sendlar lögðu niður störf – Segjast tapa á því að sendast með pantanir

Read Full Article →

Sendlar sem starfa fyrir heimsendingarfyrirtækið Wolt hér á landi lögðu niður störf tímabundið í dag. Þetta gerðu þeir til að ná athygli forsvarsmanna Wolt og fá útskýringu á því hvers vegna þeir hefðu lækkað í launum undanfarna mánuði. Um 60 sendlar lögðu niður störf og hluti þeirra safnaðist saman fyrir utan skrifstofur Wolt í Ármúla í morgun. Einn þeirra er Gheorhhe Mihai sem hefur starfað einna lengst sem sendill fyrir Wolt. „Við komum saman hér í dag til að reyna að fá að tala við forsvarsmenn Wolt og fá útskýringu á okkar launamálum. Við erum bara rólegir og ætlum að gera þetta friðsamlega en vonandi koma þeir niður og tala við okkur.“ Sendlarnir segja að Wolt greiði þeim ekki sanngjörn laun. Þar að auki hafi laun þeirra sem starfa í fullu starfi lækkað umtalsvert að undanförnu. „Við fáum um helmingi minna greitt en við gerðum í byrjun þessa árs. Það sem gerðist er að Wolt byrjaði að lækka launin mánaðarlega. Við viljum vita hvers vegna. Sendingarkostnaðurinn hefur ekki lækkað og heldur ekki verðið á matnum en samt er verið að refsa okkur og við vitum ekki af hverju.“ Fá aðeins greitt fyrir sendinguna Wolt nýtur mikilla og vaxandi vinsælda á Íslandi. Fyrirtækið kom inn á markaðinn 2023 og um 600 sendlar starfa hjá fyrirtækinu hér á landi í dag. Sendlarnir eru í svokallaðri gerviverktöku. Þeir eru ekki starfsmenn Wolt og eru ekki í stéttarfélagi. Sendlarnir búa því ekki við veikindarétt, uppsagnarfrest, frí á sérstökum frídögum, sumarfrí, mótframlag í lífeyrissjóð, framlag í sjúkrasjóði eða annað það öryggisnet sem fylgir lágmarkslaunum. Wolt greiðir þeim aðeins fyrir hverja sendingu sem þeir fara með. Sendlarnir greiða sjálfir eldsneyti, kílómetragjald, skatta og allt annað sem fellur til. „Við fáum um helming af því sem við vorum að fá fyrir hverja sendingu áður. Eins og staðan er núna erum við ekki að hagnast á því að sendast með pantanir – við erum að tapa á því,“ segir Mihai. Lágmarksgreiðsla hefur lækkað „Það á að vera lágmarksgreiðsla fyrir hverja sendingu upp á 1000 krónur en núna er hún komin niður í 600 krónur.“ Mihai segir að hann vinni á bilinu 12–13 tíma á dag. Áður hafi hann verið að fá um 40–45 þúsund krónur fyrir daginn en það sé komið niður í 20–25 þúsund krónur núna. „Þess vegna erum við hér í dag. Ég er í samtali við Wolt og þeir segjast ætla að finna lausn á þessu. Við sendlarnir viljum vinna með þeim og sem teymi.“ Forsvarsmenn Wolt hafa boðað sendlana á fund á fimmtudaginn í næstu viku, 24. september. „Ef það kemur ekkert út úr því þá förum við í alvöru verkfall og ræðum við stéttarfélög og lögregluna. Komi til þess þá veit ég ekki hvað verkfallið myndi vara lengi, einhverja daga, vikur eða mánuði,“ segir Mihai. Wolt segist skoða málið Christian Kamhaug, upplýsingafulltrúi Wolt, vildi ekki veita fréttastofu viðtal en fyrirtækið sendi frá sér yfirlýsingu vegna þessara minniháttar mótmæla eins og það er orðað í póstinum. Þar segir að Wolt taki ábendingum sendlanna alvarlega og fyrirtækið virði rétt allra til að koma áhyggjum sínum á framfæri. Farið verði yfir þau mál sem hafa komið fram og rætt verði beint við sendlana. Sendlarnir viti fyrir fram hvað þeir fái greitt fyrir hverja sendingu áður en þeir samþykkja hana og geti því tekið upplýsta ákvörðun um hvaða sendingar þeir taka að sér. Yfirlýsing Wolt í heild sinni Við hjá Wolt tökum ábendingum sendla alvarlega og leitum nú eftir opnu og uppbyggilegu samtali við sendlana þar sem við getum farið yfir stöðuna í sameiningu. Við virðum rétt allra til að koma áhyggjum sínum á framfæri og mótmæla með friðsamlegum hætti. Við erum að fara yfir þau mál sem hafa komið fram og viljum ræða þau beint við sendlana til að skilja betur þeirra sjónarmið og hvað megi bæta. Markmið okkar er að bjóða fyrirkomulag sem sameinar sveigjanleika, gagnsæi og tekjumöguleika til lengri tíma. Sendlar sjá fyrirfram hvað þeir fá greitt fyrir hverja sendingu áður en þeir samþykkja hana. Þannig geta þeir tekið upplýsta ákvörðun um hvaða sendingar þeir taka að sér og hvenær þeir sinna þeim. Við söfnum reglulega ábendingum frá sendlum og nýtum þær til að bæta upplifun þeirra af því að nota Wolt. Ánægja sendla á Íslandi mælist nú 4,75 af 5, samanborið við 4,7 af 5 að meðaltali árið 2025. Þótt niðurstaðan sé jákvæð breytir hún ekki því að taka þarf þær áhyggjur sem nú hafa komið fram alvarlega. Við munum halda samtalinu við sendlana áfram og fara yfir með þeim hvað hægt sé að gera betur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem málefni Wolt-sendla rata í fjölmiðla. Alþýðusamband Íslands hefur ítrekað gagnrýnt fyrirtækið fyrir að vera með starfsfólk í heimsendingum í gerviverktöku. Sambandið hefur farið fram á að Wolt geri ráðningarsamning við sendla fyrirtækisins og greiði þeim samkvæmt kjarasamningi. Starfsfólkið sé á launum langt undir lágmarki og njóti engra réttinda í starfi. Þá sendu stéttarfélög á Norðurlöndunum frá sér sameiginlega yfirlýsingu í síðustu viku vegna starfshátta Wolt. Kamhaug sagði í viðtali við Kastljós fyrr á árinu að sendlar fyrirtækisins á Íslandi væru þeir hæstlaunuðu í Evrópu. Níu af hverjum tíu sendlum vildu ekki vera fastráðnir starfsmenn og væru ánægðir með fyrirkomulag fyrirtækisins eins og það er. Þar sagði hann það misskilning að sendlarnir fengju aðeins greitt það sem viðskiptavinurinn borgar fyrir sendinguna. „Hann fær mun meira fyrir sitt. Þegar við reiknum út meðallaunin hjá íslensku sendlunum þá eru þau sex þúsund íslenskar krónur á tímann. Það eru þokkaleg laun,“ sagði Kamhaug í febrúar. Um 60 sendlar sem starfa fyrir heimsendingarfyrirtækið Wolt hér á landi lögðu niður störf fyrr í dag. Þeir segja fyrirtækið hafa lækkað laun þeirra um 40 prósent á einu ári. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir fréttamaður ræddi við Gheorhhe Mihai fyrir utan skrifstofur Wolt í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Share this article