- What: Chess community tensions ahead of elections
- Impact: Political disputes in the chess world
Innlent | mbl | 2.7.2026 | 20:00 Rafmögnuð spenna í skákheiminum Frá vinstri: Gunnar Björnsson, Arkady Dvorkovich og Lukasz Turlej. Mikil spenna ríkir í skákheiminum vegna komandi kosninga. Samsett mynd/Eggert Jóhannesson/Skjáskot X Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Í sumar fara fram stjórnarkosningar bæði í Alþjóðaskáksambandinu (FIDE) og Skáksambandi Evrópu (ECU). Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, býður sig fram til stjórnar ECU. Gunnar segir rafmagnaða spennu ríkja í skákheiminum í aðdraganda kosninganna. Georgíumaður, Frakki og Pólverji „Það eru þrír framboðslistar og sex manns á hverjum lista,“ segir hann um kosningar ECU, en hans forsetaefni er Pólverjinn Lukasz Turlej. Meðal forsetaefnanna þriggja er einnig núverandi forseti, hinn georgíski Zurab Azamaiparashvili, sem býður sig fram til endurkjörs. Gunnar hefur áður setið í stjórn með honum en býður sig nú fram undir nýju forsetaefni. Þriðji frambjóðandinn heitir Backar Kouatly og er franskur. Kosningarnar fara þannig fram að hver Evrópuþjóð, alls 54 talsins, kýs. Fyrst er kosið á milli þriggja frambjóðenda og ef enginn fær meirihluta er kosið á milli þeirra tveggja efstu í seinni umferðinni. Gunnar telur langlíklegast að ekkert framboðanna fái meirihluta í fyrstu umferð. Gunnar Björnsson hefur verið forseti Skáksambands Íslands frá árinu 2009. mbl.is/Eggert Jóhannesson Efasemdir vegna tengsla við Rússland Ekki dregur úr fjörinu eftir kosningar ECU en seinna í haust eru svo kosningar til stjórnar FIDE. Núverandi forseti, Arkady Dvorkovich, býður sig fram til endurkjörs en samkvæmt umfjöllun skak.is hafa viðbrögð við framboði hans verið blendin, sérstaklega vegna tengsla hans við Rússland. Gunnar kveðst deila áhyggjum margra af tengslum Dvorkovich við Rússland, það geri stöðuna snúna og erfiða þrátt fyrir að hann hafi „staðið sig frábærlega“ í hlutverki forseta FIDE síðustu átta ár. „En hann er náttúrulega Rússi og fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra Rússlands," segir hann. Á listum yfir mögulegar refsiaðgerðir „Staðan er flókin vegna þess að Rússlandi var nýlega vikið úr FIDE fyrir að halda skákmót á herteknu svæði í Úkraínu,“ bætir hann við. Þá hefur nafn Dvorkovich og einhverra stuðningsmanna hans einnig birst á listum yfir mögulegar refsiaðgerðir ESB vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Þær geta valdið alls kyns vandamálum fyrir Dvorkovich sjálfan og FIDE. Einnig vekur athygli að Dvorkovich lagði sjálfur fram tillögu um átta ára, eða tveggja kjörtímabila, hámark þegar hann var kjörinn forseti árið 2018. Samt sem áður býður hann sig nú fram í þriðja sinn. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Ítalía, staðan er 44:51 Kom á bráðamóttökuna í lífshótandi losti Spánn - Austurríki, staðan er 1:0 Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Spilaði stóran þátt í ákvörðun Ítalans Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gekk á milli húsa og villti á sér heimildir Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Skúraveður með hagléljum og eldingu 17 látnir eftir stærstu áras á Kænugarð frá upphafi Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Ísland - Ítalía, staðan er 44:51 Kom á bráðamóttökuna í lífshótandi losti Spánn - Austurríki, staðan er 1:0 Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Spilaði stóran þátt í ákvörðun Ítalans Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandero áfram vestan við landið Sækja veikan mann á skemmtiferðaskipi Gekk á milli húsa og villti á sér heimildir Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni Mest lesið Í gær Í vikunni Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið